Einn fluttur á slysadeild eftir eld í íbúð í Norðlingaholti

Töluverður eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi í Norðlingaholti í Reykjavík fyrir skömmu og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað til.

Búið er að slökkva eldinn og slökkviliðið hefur náð stjórn á vettvangi. Einn var fluttur á slysadeild en ekki er vitað að svo stöddu hvert ástand hans er.

Slökkvilið er enn þá að störfum á vettvangi. Verið er að reykræsta íbúðina og tryggja vettvanginn.Slökkvilið að störfu. Mynd úr safni.RÚV / Ragnar Visage


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.