Ekki lausn að opinbera heimilisföng dæmdra kynferðisbrotamanna

Barnaníðsefni hefur aldrei verið jafn útbreitt og fullorðnir karlmenn hafa greiða leið að börnum í gegnum samfélagsmiðla. Afbrotafræðingur segir markvissa, einstaklingsbundna, meðferð geta dregið úr afbrotum.

Í umfjöllun Kveiks í gærkvöldi var fjallað um kynferðisbrot gegn börnum.

Óvíst hvort hægt sé að lækna fólk af barnagirnd

Helgi Gunnlaugsson, félags- og afbrotafræðingur við Háskóla Íslands, segir erfitt að alhæfa um að ein meðferð virki fyrir alla kynferðisbrotamenn.

Brotin séu margs konar og meðferðarúrræðin líka.

Hann segir rannsóknir sýna að þegar markvissri meðferð er fléttað inn í önnur afplánunarúrræði þá dregur úr því að menn brjóti ítrekað af sér.

Helgi segir að þrátt fyrir markvissa meðferð bendi rannsóknir þó til þess að óvíst sé hvort hægt sé að lækna fólk af barnagirnd.

„En síðan auðvitað spurningin að kynferðisbrot og þegar um er að ræða barnagirnd og spurninguna um það hvort hægt sé að lækna barnagirnd eða að einhverju leyti koma í veg fyrir hana hjá viðkomandi. Þá er nú ýmislegt sem bendir til þess að það sé óvíst eða að það sé hægt.“

Mikilvægast að þeir viðurkenni eigin vanda

Helgi segir það skipta mjög miklu máli að þeir sem haldnir eru barnagirnd, og eru dæmdir fyrir kynferðisbrot gegn börnum, viðurkenni eigin vanda.

„Og þá er margt sem bendir til þess að það sé hægt að fá þá til þess að brjóta ekki af sér.“

Helga hugnast ekki sú leið, sem hefur verið farin til dæmis í Bandaríkjunum, að gera heimilisföng dæmdra kynferðisbrotamanna opinber.

Hann segir slíka opinberun ekki hafa stuðlað að færri brotum gegn börnum. Það geti fremur ýtt undir útskúfun og biturð brotamannanna og það geti skilað hættulegri brotamönnum aftur út í samfélagið.

Mikilvægast sé að hafa fjölbreytt meðferðarrúrræði samhliða fangelsisdómum, í samræmi við brotin.