Eldur kviknaði í Nytjamarkaði ABC á Smiðjuvegi 2 í Kópavogi í nótt. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eldinn um klukkan tvö í nótt og voru allar stöðvar sendar á staðinn.
„Þetta var hörkumikill eldur,“ segir Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Hann segir að mikill eldur hafi logað úr einu rými þegar slökkvilið kom á vettvang. Hann segir að verslunarrýmið hafi verið mannlaust en á annan tug íbúa hafi verið í öðrum hluta húsnæðisins og þau hafi öll náð að forða sér út.
„Þetta leit mjög illa út í byrjun, það var mikill eldur og stórt húsnæði,“ segir Stefán. Hann segir þó að slökkvilið hafi fljótlega náð tökum á aðstæðum.
Brunahólfun í húsinu kom í veg fyrir að eldurinn bærist í önnur rými. Mikið tjón varð í versluninni í brunanum og einhverjum hluta húsnæðisins. „Ég geri ráð fyrir að það sé allt meira og minna ónýtt inni,“ segir Stefán.
Lítill sem enginn reykur barst þó inn til íbúa og fékk fólkið að fara heim til sín þegar slökkvistarfi lauk. Slökkvilið hafði lokið störfum upp úr klukkan fjögur í nótt.
Eldsupptök eru ókunn.
Slökkviliðið fór í tvö önnur útköll í nótt. Þau voru bæði minni háttar. Annars vegar varð vatnsleki og hins vegar taldi einhver sig sjá reyk sem reyndist ekki vera.
Fréttin hefur verið uppfærð.
