Eldur kviknaði í Nytjamarkaðinum í Kópavogi í nótt. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eldinn um klukkan tvö í nótt og voru allar stöðvar sendar á staðinn.
Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir að logað hafi úr einu rými þegar slökkvilið kom á vettvang. Hann segir að verslunarrýmið hafi verið mannlaust en á annan tug íbúa hafi verið í öðrum hluta húsnæðisins og þau náðu öll að forða sér út úr húsnæðinu.
Brunahólfun í húsinu kom í veg fyrir að eldurinn bærist í önnur rými og slökkvilið náði fljótt tökum á eldinum. Mikið tjón varð í versluninni í brunanum og einhverjum hluta húsnæðisins.
Lítill sem enginn reykur barst þó inn til íbúa og fékk fólkið að fara heim til sín þegar slökkvistarfi lauk.
Eldsupptök eru ókunn.
