Eldur kviknaði í atvinnuhúsnæði á Selfossi í nótt þar sem eru rekin bílaskoðun, hópferðafyrirtæki og bifreiðaverkstæði.
Hafsteinn Davíðsson, settur varaslökkvistjóri Brunavarna Árnessýslu, segir að tilkynnt hafi verið um eldinn rétt fyrir klukkan fjögur. Slökkviliðsmenn voru komnir á staðinn um fimm mínútum eftir að tilkynningin barst
„Við þurftum að opna þakið til að kanna með glæður og glóð og opnuðum aðeins í veggnum fyrir framan ÞÁ. Það tókst að bjarga því að eldurinn dreifði sér ekki um húsið.“
Reykræsta þurfti allt húsið.
„Það eru töluverðar skemmdir þar inni, aðallega reykskemmdir, en það er ekki vitað í hverju kviknaði, lítur út.“
Lögregla rannsakar eldsupptök og hafði Ásmundur Sigurðsson, annar eigenda ÞÁ bíla, ekki fengið að fara inn í húsið til að kanna aðstæður þegar fréttastofa ræddi við hann í morgun.
Hann segir það áfall að missa starfsstöðina en telur þetta hafa sloppið vel. Ásmundur er bjartsýnn á að 72 sæta rúta sem var inni í húsinu hafi sloppið við eldinn. Hún gæti þó hafa orðið fyrir reykskemmdum.
Aðalskoðun er með starfsemi við hlið ÞÁ bíla. Stjórnandi hennar fékk tilkynningu í símann úr hita- og reykvarnakerfi fyrirtækisins og gerði slökkviliðinu viðvart.
