Erfiðara er að fá vinnu nú en var fyrir ári samkvæmt nýrri greiningu BHM. Atvinnuleysi hafi aukist tvö ár í röð, lausum störfum fækkað og fleiri fyrirtæki ætli að fækka starfsfólki fremur en fjölga því.
BHM miðar við tölur Hagstofu Íslands, þar sem atvinnuleysi mældist 5,9% í september, samanborið við 4,8% í fyrra. Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar var atvinnuleysi 4% prósent í september en jókst um 0,3% í október – þegar það hafði einnig hækkað um tæplega hálft prósentustig frá því á sama tíma í fyrra.
BHM segir hlutfall fólks sem vantar vinnu eða vill vinna meira hafa verið 14% í september og hafi ekki verið hærra síðan 2021. Þetta samsvari um 34.000 manns sem vantaði vinnu eða meiri vinnu. Laus störf hafi verið rúmlega 3.500 – og hafi fækkað um 35% síðan á sama tíma í fyrra.
Yfir 1.700 hafi verið á atvinnuleysisskrá í ár eða lengur, um 10% fleiri en ári áður. Hlutfallið meðal 16 til 24 ára hafi verið 12,7%, eða þrefalt hærra en meðal 25 til 74 ára. BHM segir atvinnuleysi meðal háskólamenntaðra hafa aukist úr 2,1% árið 2024 í 2,9% árið 2025.
Í september hafi 13,6% fyrirtækja í könnun Gallup sagt sig skorta starfsfólk en um 30% hugðust þó fækka starfsfólki á næsta hálfa ári fremur en að fjölga því.
