Erfitt en mögulegt og ákaflega mikilvægt að halda hlýnun Jarðar undir tveimur gráðum

Of seint að ná 1,5 gráðu markmiðinu

Í skýrslu umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, The point of return – Vendipunkturinn – er því lýst formlega og afdráttarlaust yfir, að það sé um seinan að halda hlýnun Jarðar undir 1,5 gráðum frá meðalhitastigi fyrir iðnbyltingu. Til þess hafi ríki heims einfaldlega gert of lítið til að mögulegt sé að ná því markmiði. Jörðin mun hlýna meira en um 1,5 gráður. Nú er spurningin hvað þarf – og er hægt – að gera til að snúa þessari þróun við sem fyrst – og hversu mikið er raunhæft að ætla að hemja hlýnunina?

Erfitt en þó enn mögulegt að standa við yfirmarkmið Parísarsamningsins

Ef ekkert verður að gert, segir í skýrslunni, verður hlýnunin 2.6 gráðu fyrir næstu aldamót, sem veldur óhjákvæmilega meiriháttar hamförum um allan heim. Fram kemur að enn sé mögulegt að standa við yfirmarkmið Parísarsamningsins um að hlýnunin verði ekki meiri en tvær gráður. Og að það sé líka mögulegt – með markvissum,róttækum og umfram allt skjótum aðgerðum – að ná viðsnúningi, vendipunkti, öllu fyrr, þannig að hámarkshlýnun verði ekki meiri en 1,7 – 1,8 gráður áður en kólna tekur á ný.

Verði þessu plani fylgt eru sagðar 66 prósenta líkur á að þetta gangi upp, og helmingslíkur á að komast aftur niður fyrir 1,5 gráðu hlýnun fyrir næstu aldamót, sem er langtímamarkmið Parísarsamningsins.

Kallar á mikinn og skjótan niðurskurð losunar – sem hefur ekkert gengið

En hvað þarf til? Jú, það sama og alltaf áður: Minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Brúa bilið á milli þess sem að var stefnt og raun varð á. Og það bil er mikið og stórt, sannkallað ginnungagap. Til að brúa það þarf að minnka árlega heildarlosun um 18 prósent frá því sem hún var í fyrra fyrir árið 2030, um 45 prósent fyrir 2035 og 69 prósent fyrir 2040 – á næstu fjórtán árum sem sagt.

En sporin hræða, því þrátt fyrir fjölda samninga, háleit markmið og fögur fyrirheit um hið gagnstæða heldur notkun jarðefnaeldsneytis áfram að aukast og losunin minnkar lítið sem ekkert. Er einhver ástæða til að ætla að það breytist?

Tækniframfarir auka bjartsýni á árangur – en hvað ef allt fer á versta veg?

Elín Björk Jónasdóttir sérfræðingur loftslagsmálum í umhverfis, orku og loftslagsráðuneytinu er einn af fulltrúum Íslands á 31. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP 31, sem hófst formlega í Antalya í Tyrklandi í vikunni. Þar á, nú sem fyrr, að ræða og semja um leiðir til að takmarka hlýnun Jarðar eins og kostur er og aðgerðir til að aðlagast afleiðingum yfirstandandi og yfirvofandi loftsslagsbreytinga.

Spegillinn náði tali af henni áður en hún fór af landi brott og spurði hvort raunhæft sé að ætla – svona í ljósi reynslunnar til þessa – að það takist að draga jafn svakalega úr losun á jafn svakalega skömmum tíma og þarna er lagt upp með. Hún viðurkennir að þar sé á brattann að sækja, en möguleikinn sé þó enn fyrir hendi.

Það eykur henni bjartsýni að tækninni – og þá sér í lagi tækni til endurnýjanlegrar orkuvinnslu – hefur fleygt fram á undanförnum árum, sem ætti að auðvelda heimsbyggðinni að ná þeim árangri sem ná verður ef takast á að snúa blaðinu við í tæka tíð.

En hvað ef það tekst ekki? Hvað ef heimurinn hlýnar um 2,6 gráður – eða jafnvel 2,8 eins og líka er talað um? Þá, segir Elín, bíður komandi kynslóða mjög breytt ásýnd náttúrunnar, jafnt hér á landi sem annars staðar, og mikil og erfið vinna við að laga sig að breyttum heimi.

Rætt var við Elínu í Speglinum á mánudag og þriðjudag. Viðtalið í heild sinni má svo hlusta á í spilaranum hér að neðan.Það er um seinan að hindra að Jörðin hlýni um meira en 1,5 gráður umfram meðalhita fyrir iðnbyltingu. Til þess hafa ríki heims einfaldlega gert of lítið, Jörðin mun hlýna meira. Spurningin er bara hversu miklu meira – og hvað gerist þá?


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.