Íslendingar hafa löngum verið viljugir að tileinka sér nýjungar og Internetið var engin undantekning frá því þegar það kom fram á sjónarsviðið. Fljótlega varð algengt að tölva og nettenging væri á nær hverju heimili.
Sigurður G. Valgeirsson, þáttastjórnandi í Dagsljósi, spurði Sykurmolann Einar Örn Benediktsson að því í þættinum 1995 hvort netið væri tískubylgja eins og fótanuddstæki, væri „fótanuddstæki samtímans“. Einar Örn vildi ekki taka undir það heldur sá ýmis tækifæri í netinu.Truflanir hjá Microsoft um allan heim í lok vinnuvikunnar sýndu svo um munaði hvað fólk er fljótt að venjast og taka því sem sjálfsögðum hlut, til dæmis að senda tölvupóst. Manst þú eftir því þegar netið var nýtt fyrirbæri?
Gísli Marteinn Baldursson greindi í fréttum í september 1997 frá nýjunginni Internet Explorer sem Microsoft hafði sett á markað og náð forskoti á Netscape sem hafði sett Netscape Navigator á markað þremur árum fyrr og fljótlega komist í yfirburðastöðu. Gísli Marteinn ræddi við Gest G. Gestsson, markaðsstjóra Margmiðlunar, og Pétur Rúnar Guðnason, vefstjóri Margmiðlunar.Truflanir hjá Microsoft um allan heim í lok vinnuvikunnar sýndu svo um munaði hvað fólk er fljótt að venjast og taka því sem sjálfsögðum hlut, til dæmis að senda tölvupóst. Manst þú eftir því þegar netið var nýtt fyrirbæri?
Í febrúar 1997 var greint frá því í fréttum að Vegaeftirlit Vegagerðarinnar væri byrjað að koma upplýsingum um færð á vegum, veður og fleira á framfæri á Internetinu. Einnig væri hægt að fá upplýsingar í Textavarpi Sjónvarpsins og í síma. Rætt var við Hjörleif Ólafsson deildarstjóra hjá Vegagerðinni um þessi tímamót.
Truflanir hjá Microsoft um allan heim í lok vinnuvikunnar sýndu svo um munaði hvað fólk er fljótt að venjast og taka því sem sjálfsögðum hlut, til dæmis að senda tölvupóst. Manst þú eftir því þegar netið var nýtt fyrirbæri?
Gísli Marteinn hélt áfram að fjalla um nýjungar. Í desember 1998 fjallaði hann um netsíma og ræddi við Pétur Mogensen framkvæmdastjóra Íslandssíma, Þór Jes Þórisson framkvæmdastjóra markaðs- og sölusviðs Landssímans og Ísleif Gíslason hjá Talneti.
Truflanir hjá Microsoft um allan heim í lok vinnuvikunnar sýndu svo um munaði hvað fólk er fljótt að venjast og taka því sem sjálfsögðum hlut, til dæmis að senda tölvupóst. Manst þú eftir því þegar netið var nýtt fyrirbæri?
Fyrsta skrefið í nettengingu höfuðborgarsvæðisins um raforkukerfið var stigið í júní 1999 með undirritun á samningi um tengingu 100 fyrirtækja og heimila í Reykjavík í gegnum raforkukerfi Orkuveitu Reykjavíkur.
Truflanir hjá Microsoft um allan heim í lok vinnuvikunnar sýndu svo um munaði hvað fólk er fljótt að venjast og taka því sem sjálfsögðum hlut, til dæmis að senda tölvupóst. Manst þú eftir því þegar netið var nýtt fyrirbæri?
Og þróunin var hröð. Í fréttum í nóvember sama ár var komin ný þjónusta á markað á vegum Símans-GSM, Vísis.is og Flugleiða. Hún bar heitið Vit og var sögð margfalda notagildi GSM-símans, sem í dag er nú bara kallaður sími.
Nú var hægt að fara inn á vefi fyrirtækjanna í símanum, leita þar upplýsinga og skoða tölvupóst.
Rætt er við Ólaf Þ. Stephensen, forstöðumann upplýsinga- og kynningarmála Landssímans, sem sagði símann orðinn öflugt upplýsingatæki. „Internetið verður orðið hreyfanlegt og í hvers manns vasa,“ sagði hann.Truflanir hjá Microsoft um allan heim í lok vinnuvikunnar sýndu svo um munaði hvað fólk er fljótt að venjast og taka því sem sjálfsögðum hlut, til dæmis að senda tölvupóst. Manst þú eftir því þegar netið var nýtt fyrirbæri?
