ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur hætt rannsókn á meintum samkeppnisreglum Skels fjárfestingafélags í tengslum við starfsemi Lyfjavals. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skel.
Í tilkynningu ESA í október 2024 segir að stofnunin hafi grunsemdir um að brotið kunni hafa verið gegn samkeppnisreglum EES-samningsins. Þá var ráðist í fyrirvaralausa athugun og húsleit í samvinnu við íslensk yfirvöld.
Samkvæmt tilkynningu Skels hefur félaginu borist bréf frá ESA þar sem því er tilkynnt að stofnunin hafi lokið rannsókninni og lokað málinu.
„Eftir ítarlega greiningu og vandlegt mat á öllum gögnum sem aflað var sé ekki nægur grundvöllur til að halda rannsókninni áfram. Málinu er því lokið,“ segir í tilkynningunni.
