Heilbrigðisráðherra segir í skoðun hvort eigi að niðurgreiða bólusetningu við ristli. Stjórnvöld fá ráðgjöf sóttvarnalæknis til að meta bólusetningar fyrir eldra fólk, hver forgangsröðun þeirra eigi að vera og fjármögnun.
Forgangsröðun frá sóttvarnalækni
Rannsóknir benda til þess að bólusetning gegn ristli geti dregið úr líkum á heilabilun. Ristill er sjúkdómur af völdum sömu veiru og veldur hlaupabólu. Hann leggst helst á eldra fólk og getur valdið varanlegum skaða.
Mikil aukning hefur verið á eftirspurn eftir bólusetningu gegn ristli undanfarið. Hægt er að fá bólusetninguna en þá þarf að greiða úr eigin vasa alls 54 þúsund krónur.
„Þetta er í skoðun og við munum kalla eftir forgangsröðun frá sóttvarnalækni sem er okkar ráðgjafi í bólusetningarmálum og síðan þarf að vega og meta hvort það eigi að innleiða þetta fyrir alla og í greiðsluþátttöku,“ segir Alma Möller, heilbrigðisráðherra.
Þannig að það kæmi til greina af ykkar hálfu að eldra fólk geti fengið ókeypis bólusetningu við ristli?
„Þetta er auðvitað alltaf spurning um hvernig fjármunir nýtast sem best og það eru fáar þjóðir sem eru að greiða fyrir bólusetningu við ristli enn sem komið er. En við vitum að ef fólk fær ristil þá hefur það veikindi og verki í för með sér. Svo eru þessar vísbendingar sem mikið er talað um að sú bólusetning geti dregið úr heilabilun en það þarf að staðfesta betur með rannsóknum.“
