Færri háskólanemar taka námslán

Háskólanemum sem taka námslán hefur fækkað á síðustu árum. Skólaárið 2024–2025 tóku 12,5% íslenskra háskólanema námslán. Það er mikil fækkun frá skólaárinu 2008–2009. Þá tóku 57% háskólanema námslán.

„Það hefur lækkað verulega hlutfall þeirra sem taka námslán. Skýringin á því er að námslán bera markaðstengda vexti núna. Vaxtabyrðin er þung, sveigjanleiki í kerfinu er alltof lítill og framfærslan hefur ekki haldið í við verðlag,“ segir Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur hjá BHM.

Íslenskir háskólanemar velja frekar að vinna meðfram námi en að taka lán. Meiri vinna samhliða námi getur leitt til hægari námsframvindu eða frestunar náms, að sögn Ingvars.

Kerfinu var breytt 2020

Námslánakerfinu var breytt árið 2020. Ingvar segir kerfið í núverandi mynd ekki þjóna námsmönnum og kallar eftir breytingum á því. Færri voru farnir að taka námslán fyrir breytinguna en sú þróun hefur haldið áfram.

Ingvar kallar eftir endurskoðun kerfisins.

„Það skiptir máli að færa þetta til betri vegar. Það þarf að skoða að gera þannig þetta verði að raunhæfum kosti fyrir þau sem þurfa á námslánum að halda. Það þarf að skoða framfærsluviðmið, tekjuskerðingarnar og lánskjörin saman. Stuðningurinn þarf að duga á námstímanum.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.