Færri heimili á leigumarkaði

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun hefur endurmetið áætlaðan fjölda heimila á leigumarkaði hér á landi og eru þau færri en áður var talið. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef HMS.

Stofnunin telur nú að heimilin séu allt að 48 þúsund en ekki 50 þúsund eins og áætlað var í fyrra. Hlutfall fullorðinna einstaklinga á leigumarkaði hækkaði hins vegar úr 28% í fyrra í 29% í ár samkvæmt búsetukönnun HMS sem telur skýringuna einna helst vera að meðalheimilisstærð hafi aukist lítillega – úr 2,1 í 2,2.

Hlutfall barna sem býr í leiguhúsnæði hefur lækkað úr 23% í fyrra í um 20% í ár.RÚV / Ragnar Visage


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.