Feðgar í haldi vegna manndrápsrannsóknarinnar

Íslenskur maður á fertugsaldri og faðir hans eru á meðal þriggja sem eru í haldi í tengslum við rannsókn á manndrápi í Breiðholti í nótt, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Sá yngri af feðgunum er talinn hafa beitt hnífnum á tvo menn eftir átök á milli þeirra. Sá sem lifði árásina af er enn mikið slasaður á gjörgæsludeild. Hnífurinn er enn ófundinn, eftir því sem heimildir fréttastofu herma.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru feðgarnir jafnframt báðir með áverka en mismikla. Faðirinn er tæplega sextugur. Ekki liggur fyrir hver aðkoma hans var. Fram kom í tilkynningu lögreglu fyrir hádegi að þrír væru í haldi vegna málsins en fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hver sá þriðji er.

Árásin var framin utandyra á horni Hraunbergs og Austurbergs og þar hefur einhver skilið eftir blóm og kerti til minningar um hinn látna.

Til skoðunar er hvort upptökur eru til af árásinni úr öryggismyndavélum á svæðinu, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.