Ferðamenn eyða meira en fá minna fyrir peninginn en í fyrra

Fjöldi ferðamanna það sem af er ári er svipaður og á sama tíma í fyrra, en samsetning þeirra er breytt, samkvæmt nýrri greiningu Landsbankans. Tæplega tvær milljónir ferðamanna hafa heimsótt landið það sem af er ári, eða aðeins um 0,5% færri en á sama tíma í fyrra samkvæmt talningu Ferðamálastofu, þrátt fyrir talsvert minna flugframboð.

Aðeins fleiri erlendir ferðamenn komu til landsins í október í ár en í fyrra. Fjöldi ferðamanna er áfram mjög svipaður milli ára þrátt fyrir minna flugframboð. Tengifarþegum og utanlandsferðum Íslendinga fækkar aftur á móti.

Bandaríkjamenn eru stærsti einstaki hópur ferðamanna sem kemur til Íslands, eða rétt tæplega þriðjungur, og hefur það hlutfall lítið breyst síðustu ár. Hlutfall ferðamanna frá Kína og Kanada af heildarfjölda ferðamanna hefur aukist mikið en á móti hefur hlutfall breskra ferðamanna minnkað töluvert.

Samkvæmt verðmælingum Hagstofunnar, sem miðast við utanlandsferðir Íslendinga, hafa flugfargjöld verið töluvert hærri í ár en í fyrra, eða að meðaltali 23%.

Í október voru flugfargjöld um 28% hærri en á sama tíma í fyrra.

Samkvæmt Landsbankanum jókst kortavelta ferðamanna í október um 6,3% á milli ára á föstu gengi en á föstu verðlagi dróst hún saman um 1,5%. Það þýðir að ferðamenn eyða meira í sínum gjaldeyri en fá minna af vörum og þjónustu fyrir peningana.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.