Félagsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) samþykktu á fundi í gær að efna til atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir sem takmarkast við leiguflug Icelandair fyrir þriðja aðila.
Aðgerðirnar næðu ekki til áætlunarflugs Icelandair heldur beinast fyrst og fremst að fyrirætlunum félagsins á Möltu, að því er segir í tilkynningu.
„Tillagan sem borin verður undir atkvæði flugmanna tekur aðeins til leiguflugs Icelandair/Loftleiða fyrir þriðja aðila. Með þeirri afmörkun vill FÍA hlífa farþegum í leiðakerfi Icelandair við röskun, gæta almannahagsmuna og draga úr áhrifum hugsanlegra aðgerða á íslenskt efnahagslíf,“ segir í tilkynningu á vef FÍA.
Kjaradeilan strand og fyrirætlanir á Möltu
Kjaradeilur Icelandair og FÍA hafa verið á borði ríkissáttasemjara frá því í vor. Samningar hafa verið lausir frá því haustið 2025.
Icelandair keypti nýverið 49% hlut í Fly Play Europe sem er með flugrekstrarleyfi á Möltu.
Í tilkynningu FÍA segir að Icelandair ætli að ganga fram hjá íslenskum kjarasamningum og færa verkefni félagsins úr landi, til flugmanna á lakari kjörum.
„FÍA fordæmir þessar fyrirætlanir fyrirtækisins um félagslegt undirboð og sniðgöngu kjarasamninga. Forgangsréttur flugmanna Icelandair í kjarasamningi er alveg skýr varðandi forgang þeirra í þau störf sem Icelandair hyggst manna með leiguáhöfnum eða gerviverktökum í gegnum Fly Play Europe.“
Segja Icelandair hafa hafnað þremur tilboðum
FÍA segir að félagið sé tilbúið að ganga frá samningi á grunni sömu kjarabóta og samið var um á almennum vinnumarkaði og hafi þegar boðist öðrum starfshópum hjá Icelandair.
„Icelandair hefur hafnað þeirri leið,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir einnig að Icelandair hafi hafnað því að gera fleytisamning til skamms tíma með hóflegum kjarabótum.
„Loks lýsti FÍA sig reiðubúið að fallast á launafrystingu ef Icelandair teldi sér hvoruga leiðina færa. Forsenda þess var að allir starfsmenn Icelandair bæru sinn hluta byrðanna, stjórnendur meðtaldir. Icelandair hafnaði þeirri leið einnig.“
Flugmenn segjast tilbúnir að leggja sitt af mörkum sé byrðum skipt hlutfallslega og störfum þeirra ekki fórnað.
„FÍA skorar á stjórnendur Icelandair að falla frá áformum um flutning starfa úr landi, virða kjarasamningsbundinn forgangsrétt flugmanna og ganga til samninga á sama grunni og öðrum starfshópum hefur þegar boðist.“
