Fiskikör eru ekki ókeypis og á hverju ári gerir Síldarvinnslan í Neskaupstað út leitarmenn sem fara um sveitir og bryggjur og endurheimta kör merkt fyrirtækinu.
Arnar Richardsson, rekstrarstjóri hjá Berg-Hugin, dótturfélagi Síldarvinnslunnar, segir að tímakaupið við að veiða fiskikör jafnvel á túnum sé hátt og því sé leitað árlega.
„Þeir reyna að selja okkur rollur í staðinn“
„Í þessum karaleiðangri fórum við á Snæfellsnesið, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesið. Við förum yfirleitt tveir saman í góðan bíltúr. Bændurnir hafa tekið kör frá okkur og fyllt þau af vatni þannig að skepnurnar fái nú eitthvað að drekka. Við finnum þetta úti á túnum, já,“ segir Arnar. Leitarmenn hitti sjaldnast bændurna en það kemur fyrir. „Þá er þetta bara oft gott spjall og þeir reyna að selja okkur rollur í staðinn.“
Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að í leitarleiðangrinum hafi komið í ljós að önnur fyrirtæki höfðu notað kör undir salt og saltfisk eða undir fisk þegar hann var fluttur á milli staða.
Hvert kar kostar 40-50 þúsund
„Í þessum leiðangri fundum við 34 kör. Þegar við eigum orðið 4 þúsund kör og hvert kar er 40-50 þúsund í framleiðslu þá eru töluverð verðmæti sem liggja í þessu. Við erum oft á ágætis tímakaupi við þetta. Okkur sárnar mest þegar fiskvinnslur eru að nota körin okkar undir sína starfsemi. Það svona erum við ósáttastir með. Fólk tekur þetta traustataki án þess að tala við okkur,“ segir Arnar Richardsson, rekstrarstjóri hjá Berg-Hugin, dótturfélagi Síldarvinnslunnar.
Síldarvinnslan hvetur fólk til að ganga vel um fiskikör og koma þeim til Eimskips, Flytjanda eða Fiskmarkaðar Íslands svo að þau komist í hendur rétts eiganda.
