Fyrrverandi vistmenn á barnaheimilinu Hjalteyri við Eyjafjörð lýsa yfir óánægju sinni með fyrirhugað lagafrumvarp forsætisráðherra um sanngirnisbætur.
„Án þess að fjalla þurfi sérstaklega um flækjustigið í frumvarpinu til að fá bætur yfir höfuð er ekki hjá því komist á þessu stigi að gagnrýna harðlega bótafjárhæðirnar, sem eru skammarlegar að mati umbjóðenda minna,“ skrifar Gísli Kr. Björnsson lögmaður í yfirlýsingu fyrir hönd vistmannanna.
Frumvarpinu er ætlað að koma á varanlegu úrræði fyrir þá sem urðu sem börn fyrir illri meðferð eða ofbeldi í vistun utan heimilis fyrir atbeina stjórnvalda. Móttaka á umsóknum um bætur hefst 1. janúar 2028 verði frumvarpið að lögum.
Í núverandi útgáfu er lagt upp með að bætur verði ein, þrjár eða fimm milljónir króna eftir alvarleika hvers máls. Aðrir lögmenn þeirra sem urðu fyrir ofbeldi í vistun á vegum hins opinbera hafa kallað eftir því að bótafjárhæðin verði hækkuð.
Enginn náð sér að fullu
Í yfirlýsingunni segir að allir fyrrverandi vistmennirnir á barnaheimilinu hafi mátt líða vítiskvalir á meðan vist þeirra á Hjalteyri stóð. „Ekkert þeirra hefur náð sér að fullu eftir harðræðið sem þau sættu, jafnvel þótt liðin séu 50-60 ár frá því að vistunartímanum lauk.“
Í yfirlýsingunni segir að með sanngirnisbótum eigi að bæta það tjón sem fólkinu var valdið.
„Sem framið var gegn vilja þeirra, gegn landslögum og gegn almennu siðgæði og velsæmi, og blinda auganu snúið að þeim. Mögulega sjá sumir hag sinn af því að þvo hendur sínar með þessum hætti, en telja verður að handþvotturinn sé í boði umbjóðenda minna, gegn vilja þeirra og almennu siðgæði og velsæmi, en í þetta skiptið að ósanngjörnu lagaboði.“
