Fjölgar í hópi grunaðra um stórfellda líkamsárás

Sex hafa stöðu grunaðra í rannsókn lögreglu á stórfelldri líkamsárás í Reykjanesbæ í byrjun október. Rannsókn miðar vel og búið er að hafa uppi á öllum sakborningum.

Þetta staðfestir Stefán Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í rannsóknadeild lögreglunnar á Suðurnesjum.

Sá sem varð fyrir árásinni var maður á þrítugsaldri. Betur fór en á horfðist en lögregla segir sérstaklega hættulegri aðferð hafa verið beitt við árásina. Lögregla telur að áhaldi hafi verið beitt.

Fyrst var talið að fimm hefðu komið að árásinni en grunaðir eru sex samkvæmt nýjustu upplýsingum frá lögreglu.