Fjölgun covid-smita: „Þurfum að sjá fleiri gögn til að vita hvert stefnir“

Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir ekki næg gögn liggja fyrir til að sjá hvert útbreiðsla Covid-19 stefnir. Greiningum fjölgaði mikið í fyrstu viku nóvember og hafa ekki verið fleiri síðan í ágúst 2024.

Í fyrstu viku mánaðar greindust 32 með kórónuveiruna og hafa ekki fleiri greinst síðan í ágúst 2024. Þrátt fyrir að smitum hafi fjölgað segir sóttvarnalæknir að greiningar séu ekki margar.

„Þetta er bara ein vika svo við þurfum að sjá fleiri gögn til að vita hvert stefnir og við höfum heldur ekki góðar upplýsingar endilega um veikindin hjá fólkinu.“

Í tilviki eldra fólks er gert ráð fyrir að smitin hafi áhrif og geti leitt til alvarlegra veikinda.

Fólk greinist einkum á spítölum eða bráðamóttöku og smitin tengjast sum hver hópsýkingu á Landspítalanum. Guðrún segist ekki hafa upplýsingar um hve alvarleg veikindin eru en enginn liggur á gjörgæslu. Þá er ekki víst að fólk sé á spítala vegna kórónuveirunnar.

Erfitt að vita hvernig útbreiðsla í samfélaginu er

Sóttvarnalæknir hefur heldur ekki upplýsingar um niðurstöður hraðprófa svo erfitt er að vita hvernig útbreiðsla vægari veikinda er í samfélaginu.

„Fólk þarf auðvitað að passa sig gegn öndunarfærasýkingum,“ segir Guðrún. Hún segir að kvefveirur og RS-veiran komi oft upp á þessum árstíma og geti valdið alvarlegum veikindum, bæði hjá börnum og fullorðnum.

„Það er um að gera að passa sig og fara varlega í umgengni. Bólusetja sig gegn því sem hægt er – fyrir þá sem það er í boði – og svo passa upp á umgengni, hreinlæti og samskipti á þessum flensutíma. Það er alveg full ástæða til þess.“