Fjölskyldubakland ræður miklu um hverjir komast inn á fasteignamarkaðinn

Fjölskyldubaklandið ræður miklu um hver kemst inn á húsnæðismarkaðinn og ungir kaupendur, 34 ára og yngri, sjá skort á eigin fé sem meiri farartálma en greiðslumat og afborganir.

Þetta er eitt þess sem kemur fram í niðurstöðum könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði.

Hátt hlutfall kaupsamninga varðar fyrstu kaupendur sem talið er mega rekja til liðsinnis foreldra ungra kaupenda. Margir reiða sig á foreldraaðstoðina, segir Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM.

„Og það eru 62% háskólamenntaðs fólks sem keypt hefur húsnæði sem fékk fjárhagsaðstoð frá öðrum en lánastofnun,“ sagði Ingvar Freyr í morgunútvarpi Rásar 2.

Aðstoðin segir Ingvar að sé hluti af skýringunni á að fleira yngra fólk komist inn á fasteignamarkaðinn. Raunhækkun á eigin fé í fasteignum kynslóðar foreldra unga fólksins var um 58% á árabilinu 2005 til 2025 sem gefur þeim meira svigrúm til aðstoðar.

Innlánaeign þess hóps í bönkum jókst um tæp 80% á sama tíma. Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, segir það ákveðna ráðgátu að yfir þriðjungur kaupsamninga varði fyrstu kaupendur þrátt fyrir að erfitt sé að fá lán og fasteignaverð sé hátt.

Þar sé fjölskyldubaklandið sterkt. Vitaskuld hafi ekki allir foreldrar það svigrúm sem auki á ójöfnuð meðal kaupenda ásamt háum vöxtum, að sögn Jónasar.

„Þar sem fólk situr eftir og aðrir eiga bara nokkuð auðvelt með að komast inn á markaðinn,“ segir Jónas.Bakland frá nánustu fjölskyldu ræður miklu um hverjir úr hópi yngri kaupenda komast inn á fasteignamarkaðinn. Ungir kaupendur telja skort á eigin fé meiri hindrun en greiðslumat og afborganir. Hátt hlutfall býr enn í foreldrahúsum.

Flestir kunna að hafa safnað tíu til fimmtán milljónum króna

Algengt verð á íbúðum fyrstu kaupenda segir Jónas að sé um 60 milljónir króna og þeir gætu komist upp með að greiða 10% útborgun en þá verði greiðslubyrði mjög há. Flestir fyrstu kaupendur gætu hafa safnað tíu, tólf, fimmtán milljónum að sögn Jónasar.

Ungir kaupendur hafi alltaf þurft aðstoð frá sínum nánustu en þegar vextir eru jafnháir og raun ber vitni komi ójöfnuðurinn frekar í ljós. Margir sitji fastir á leigumarkaði og þótt fólk reyni hvað það geti að safna fyrir útborgun nái það ekki að halda í við hækkandi húsnæðisverð.

Ströng lántökuskilyrðum Seðlabankans sé ætlað koma í veg fyrir að fólk festist í skuldakrísu, þótt það sé tilbúið að borga háar afborganir í eigin eign. Nokkur hópur fólks yfir fertugu þyrfti einnig á aðstoð að halda en virðist ekki njóta hennar með sama hætti og yngra fólkið.

Fjórðungur íslenskra háskólanema býr í foreldrahúsum en á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið 4,2–16,5% að sögn Ingvars auk þess sem miklu hærra hlutfall hérlendis vinnur með námi. Það sé ekki nægilega gott.

Mun færri stúdentar taki námslán núna en áður var enda séu þau ekki nægilega há til framfærslu og vextirnir háir. Niðurstöður könnunarinnar verða ræddar á hádegisfundi BHM og LÍS í Norræna húsinu í dag klukkan 11.30.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.