Fjórði hver íbúi á Tálknafirði tók þátt í málþingi vegna Brothættra byggða í gær og í dag. Verkefnið hefur hlotið nafnið Töfrar Tálknafjarðar.
Bergdís Þrastardóttir verkefnastjóri segir þátttökuna mögulega vera met. Hún segir ýmis mál hafa borið á góma, til dæmis atvinnumál, kvótamál, skólamál og samgöngur.
„Framhaldið lítur þannig út að við tökum niðurstöðurnar af þessu þingi og þeirra umræður og svo vinnum við í verkefnastjórninni þetta áfram í verkefnisáætlun þar sem við setjum niður aðgerðir sem miða að því að vinna að þeim markmiðum sem íbúar hafa sett á þessum fundi.“
Bergdís segir íbúum Tálknafjarðar einkum umhugað um ímynd og markaðssetningu plássins. Í íbúakönnun kom í ljós að 80% íbúa fyndist gott að búa í þorpinu.
Þrátt fyrir þetta virðist umræðan á þá leið að það sé erfitt og verra að vera lengra úti á landi. „Íbúar eru alls ekki sammála þessu.“
Fjallað var um verkefnið í kvöldfréttum sjónvarps í gær, 30. október.Byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir hefur fengið nafnið Töfrar Tálknafjarðar í plássinu. Málþing íbúa var haldið í gær og í dag.
