Skráð svik við millifærslu fjármuna af reikningum fólks fjórfölduðust á tveimur árum milli áranna 2023 og 2025. Svik við notkun greiðslukorta voru 29 þúsund í fyrra sem er svipað og árið 2023 eftir fækkun 2024.
Fjárhæð greiðslukortasvika síðasta árs nemur 510 milljónum króna. Árið 2023 tókst svikahröppum 322 sinnum að hafa fé af fólki með millifærslum og í fyrra sviku þeir út 845 milljónir í 1.358 skráðum skiptum.
Tjón vegna þeirra svika er skráð 683 milljónir króna samanborið við 172 milljónir króna árið áður, að því er lesa má í nýrri skýrslu Seðlabanka Íslands um þróun svika í greiðsluþjónustu.
Almenningur er hvattur til að tilkynna svik umsvifalaust til greiðsluþjónustu og lögreglu því það geti aukið endurheimt peninganna.
Í skýrslunni kemur fram að greiðandi sé blekktur með einhverjum hætti til að framkvæma millifærsluna sjálfur en við greiðslukortasvik sé algengara að svikari komist yfir kortaupplýsingar og noti þær við greiðslur án aðkomu eiganda kortsins.
