Fljúga milli Akureyrar og Tenerife næsta vetur

Icelandair hefur áætlunarflug á milli Akureyrar og Tenerife á Kanaríeyjum næsta vetur. Flogið verður einu sinni í viku á þriðjudögum frá 19. október 2027 til 18. apríl 2028.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu.

„Þetta er í fyrsta sinn sem við bjóðum upp á beint áætlunarflug út í heim frá Akureyri, en áður höfum við boðið upp á leiguflug þaðan. Nú er hægt að fara beint af skíðunum í sólina á Tenerife, án þess að fara fyrst suður. Við vonum að þessari nýjung verði tekið fagnandi,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.