Flugmenn og Icelandair funda í karphúsinu

Fundur í kjaradeilu Icelandair og flugmanna í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna í Karphúsinu hófst klukkan eitt í dag. Verkfallsaðgerðir flugmanna hefjast að óbreyttu á miðnætti annað kvöld. Aðgerðirnar ná til leiguflugs félagsins fyrir þriðja aðila.

Kjaradeilur Icelandair og FÍA hafa verið á borði ríkissáttasemjara frá því í vor. Samningar flugmanna hafa verið lausir í rúmt ár.

Icelandair og Flugvirkjafélag Íslands undirrituðu nýjan kjarasamning í gær. Samningurinn nær til tímabilsins 1. janúar 2026 til 1. september 2028.