Flugmenn samþykktu verkfallsaðgerðir um leiguflug

Flugmenn Icelandair hafa samþykkt ótímabundnar verkfallsaðgerðir sem takmarkast við leiguflug félagsins. Verkfallið hefst 20. nóvember.

Félagsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna samþykktu verkfallið með tæpum 94% atkvæða.

Í tilkynningu FÍA til félagsmanna segir að leiguflugið taki bæði til farþega- og fraktflugs þar sem brottfarar- og ákvörðunarstaðir eru utan Íslands og þar sem Icelandair Group eða Icelandair eða dótturfélög þeirra annast ekki sölu á sætum eða fraktrými flugvélarinnar, heldur þriðji aðili.

Fréttin verður uppfærð.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.