Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur þótt það hafi neytt hveitis sem innihélt mögulega myglueitur, að mati deildarstjóra matvæladeildar Matvælastofnunar, MAST.
Matvælastofnun varar við hveiti frá danska fyrirtækinu Valsemöllen A/S. Það hefur verið flutt inn og selt undir þremur vörumerkjum. Þau eru Kornax, First Price og Euroshopper.
Innköllunin nær til hveitis þar sem best fyrir dagsetning var í september.
Katrín Guðjónsdóttir, deildarstjóri matvæladeildar MAST, segir myglueitur flokk efna sem myndist náttúrulega úr myglusveppum sem eru til staðar í korni.
„En við aðstæður þar sem sveppurinn nær sér á strik, eins og til dæmis ef það er of mikill raki og þær aðstæður sem hafa verið þarna í Danmörku, þá getur magn þessara efna orðið talsvert mikið.“
Katrín tekur fram að í þessu tilfelli hafi myglueitur ekki greinst yfir mörkum.
„Heldur er ekki hægt að útiloka að það sé til staðar í magni af því að það er heldur ekki búið að sýna fram á að það sé ekki og aðstæðurnar voru þannig að það eru líkur á því að það sé einhvers staðar í miklu magni.“
Hún segir MAST ekki vita til þess að fólk hafi fundið fyrir einkennum eða veikst vegna myglueitursins.
„Enda myndum við ekki gera ráð fyrir því vegna þess að þau áhrif sem um ræðir eru í langflestum tilfellum langvinn, koma til eftir langvarandi neyslu á þessum efnum í miklu magni.“
Kristín segir áhrifin mismunandi eftir því hvaða myglueitur sé ráðandi.
„Það geta verið allt frá því að vera bráðaáhrif, ef það er mjög mikið magn af einu tilteknu efni þá eru það óþægindi frá meltingarvegi en það er ekki það sem við höldum hér. Hins vegar geta það verið áhrif á hormónastarfsemi, nýru, jafnvel krabbameinsvaldandi í miklu magni.“
Hún segir upplýsingar um myglueitrið ekki hafa borist fyrr en í lok vikunnar. Fólk þurfi þó ekki að hafa áhyggjur.
„Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur þótt það hafi neytt þessa hveitis í einhvern ákveðinn tíma. Það er bara þannig að um leið og það er vitað eða það eru líkur á að eitthvað gæti verið að þá er allrar fyllstu varúðar gætt.“
Jafnvel þó að upplýsingarnar hafi borist seint. Mikilvægt sé að neyta ekki meira af hveitinu. „Það er í rauninni eina ráðleggingin núna: ef þið eigið þetta, að hætta að nota það, skila því eða henda.“
Mikilvægt er að fólk neyti ekki meira af hveiti þar sem myglueitur mældist yfir mörkum. Best er að skila því eða henda. Fólk þarf þó ekki að hafa áhyggjur þótt það hafi neytt hveitisins í einhvern tíma.
