Jólaljósin tendruð á Ráðhústorgi

Jólasveinarnir voru óvenju snemma á ferðinni á Akureyri í dag. Þeir vildu nefnilega ekki missa af því þegar ljósin voru tendruð.

Fjölmargir, ungir sem aldnir, lögðu leið sína í miðbæinn til að berja jólasveinana augum með góðgæti í poka. Enn þá er tuttugu og einn dagur þar til þeir koma til byggða.

Þá var einnig jólaþorpið á torginu formlega opnað en það samanstendur af níu húsum sem verða opin um helgar fram að jólum.

Lúðrasveit Akureyrar og barnakór Akureyrarkirkju sáu til þess að allir færu heim í hátíðarskapi og þá kíktu ýmsar furðuverur úr Skilaboðaskjóðunni á gesti og gangandi, en leikritið verður frumsýnt í gamla Samkomuhúsinu á Akureyri á næstunni.

Bæjarstjóri Akureyrar, Berglind Guðmundsdóttir, flutti stutt ávarp. Það gerði Erik Vilstrup Lorenzen einnig en hann er sendiherra Danmerkur á Íslandi. Jólatréð er gjöf til Akureyringa frá vinabæ þeirra í Danmörku, Randers.

Loks var það Atli Einarsson, 10 ára, sem fékk þann heiður að kveikja á ljósunum á trénu.

Það var margt um manninn þegar ljósin voru tendruð á stóra jólatrénu á Ráðhústorgi á Akureyri í dag. Jólasveinarnir litu við og lúðrasveitin og barnakór Akureyrarkirkju sáu til þess að allir færu heim í hátíðarskapi.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.