Fordæmir aðkomu Rússa að ráðabruggi um aftöku

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fordæmir aðkomu rússa að áformum um að ráða úkraínska rapparannn Kyivstoner af dögum í Danmörku og danska lögreglan greindi frá í gær. Í færslu sem Þorgerður Katrín birti á X í gærkvöld segir hún fréttirnar af banatilræðinu sem skipulagt var af Kreml vera óhugnanlegar.

Danska lögreglan greindi frá því í gærmorgun að tveir Danir hafi verið handteknir nýlega vegna gruns um að þeir hafi ætlað að myrða rapparann. Danska lögreglan telur að rússneska leyniþjónustan hafi ráðið þá til að fremja morðið.

Kyivstoner hugðist halda tónleika í Charlottenlund í úthverfi Kaupmannahafnar 25. september. Danirnir tveir voru handteknir stuttu fyrir tónleikana og neita sök. Annar mannanna er í glæpagenginu Loyal to Familia og hinn er með tengsl við gengið.

Þorgerður Katrín segir í færslu sinni á X: „Við fordæmum ósvífnar tilraunir Rússlands til ofbeldis á yfirráðasvæðum bandalagsríkja – ekkert mun veikja samstöðu okkar, grafa undan ásetningi okkar eða draga úr skuldbindingu okkar um stuðning við Úkraínu.“

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, greindi frá því á blaðamannafundi í gær að utanríkisráðuneyti Danmerkur ætli að reka einn rússneskan diplómata úr landi vegna málsins. Dönsk yfirvöld hafa til skoðunar að hætta að veita Rússum Schengen-vegabréfaáritanir, sagði Rasmussen í gær. Hann sagði að í samvinnu við Evrópuríki væri til skoðunar að herða verulega á reglum um komur Rússa.