Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands segir aðbúnað dýra á búi Stjörnugríss ekki standast núgildandi reglugerð um velferð svína. Svínabændur hafi fengið framlengdan frest til ársins 2028 til að aðlaga aðbúnaðinn að kröfum reglugerðarinnar.
Linda Karen segir Dýraverndarsambandið telja nauðsynlegt að sú áherslubreyting verði að svínabú hugi að velferð dýra. „Við sjáum það að áherslan er að hámarka framleiðsluna á meðan það er minni áhersla á dýravelferð. Það er gríðarlega mikilvægt að breyta þeirri áherslu,“ segir Linda. Dýraverndarsambandið hafi áhyggjur af starfseminni.
Hún segir jafnframt brýnt að afnema þá undanþágu sem svínabændur hafi til að halaklippa grísi. Þannig sé verið að laga dýrin að starfseminni. „Samkvæmt nútímakröfum um dýravelferð á að laga starfsemina að þörfum dýranna,“ segir Linda.Aðbúnaður dýra í svínabúi Stjörnugríss stenst ekki kröfur gildandi reglugerðar að mati formanns Dýraverndarsambands Íslands. Svínabú þurfi að huga að velferð dýra fremur en hámarksframleiðslu. Einnig sé ásættanlegt að brjótast inn og hleypa dýrum út.
Einar Logi Pétursson birti í morgun myndskeið úr innbroti í svínabú Stjörnugríss og lýsti því sem hann því sem hann segir slæman aðbúnað svína í búinu. Hann benti meðal annars á að nýgotnir grísir liggi víða dauðir og mörg svín séu með legusár.
Geir G. Geirsson forstjóri Stjörnugríss sagði í yfirlýsingu síðdegis að innbrot Einars Loga hefði leitt af sér það alvarlega ástand dýranna sem sjá má í myndskeiðinu og samræmist ekki yfirlýstu markmiði hans um dýravelferð.
Linda Karen áréttar að dýr hafi orðið fyrir skaða í innbroti Einars Loga Péturssonar vegna þess að hann hleypti þeim út. Það sé óviðunandi.
Vissulega sé umdeilt að fólk fari inn í bú og taki myndir eins og gert hafi verið undanfarið. „En þetta er neyðarleið vegna þess að þessi bú eru lokuð fyrir almenningi og fjölmiðlum. Þannig að þetta er neyðarleið til að sýna raunveruleika dýra í verksmiðjubúskapnum.“
