Borið hefur á togstreitu í samfélaginu varðandi fyrirkomulag áfengissölu og þá er, að vissu leyti, uppi lagaleg óvissa í ofanálag.
Forstjóri ÁTVR, Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, segir fyrst og fremst þurfa að eyða þeirri óvissu sem ríkir um lagaramma áfengissölu. Forsvarsmenn netverslana með áfengi hafa bent á lagalega óvissu af hálfu stjórnvalda um áfengissölu.
„Ég held að það sé fyrst og fremst mikilvægt fyrir alla sem koma að þessu máli að það fáist niðurstaða og að þessari óvissu sé eytt.“Forstjóri ÁTVR segir nauðsynlegt að fá skýrari lög um áfengissölu. Sú staða sem upp sé komin reynist bæði netverslunum með áfengi og ÁTVR flókin.
ÁTVR starfi innan þröngs lagaramma ólíkt netverslunum
Hún segir þá stöðu sem upp sé komin vera flókna, ÁTVR sé ekki á samkeppnismarkaði og hagi sér því ekki eftir því. Þá segir Þorgerður að jafnvel þó að fyrirtækið líti ekki á netverslanir sem samkeppnisaðila sé ekki hægt að líta fram hjá netverslunum sem selji áfengi á allt annan hátt en ÁTVR.
„Við þurfum að starfa innan mjög þröngs lagaramma sem þau gera ekki, hvenær má hafa opið, hvað má gera í auglýsingum, hvetja til meiri kaupa og eitt og annað, þannig að það er ákveðin óreiða í þessu.“
Þorgerður segir að mikilvægast sé að komast að niðurstöðu. Síðan sé hægt að bregðast við. Þá sé það hlutverk stjórnvalda að búa til ramma sem passar eða að grípa til annarra aðgerða.
„Ég held að það verði nauðsynlegt fyrir hana að bregðast við að einhverju leyti þegar niðurstaða dómstóla liggur fyrir.“
Tvö mál hafa verið höfðuð gegn netverslunum með áfengi annars vegar Santé og hins vegar Smáríkinu. Í apríl var Smáríkisins sakfelldur í héraði fyrir sölu á þriggja lítra hvítvínsbelju á netinu. Mál íslenska ríkisins gegn Santé vegna netsölu þeirra á áfengi var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í september en frestað til 2. desember.
