Miðstjórnarfundur Framsóknarflokks var haldinn á Laugarbakka í Miðfirði um helgina.
Í ályktun fundarins kemur fram að ófaglegum vinnubrögðum barna- og menntamálaráðherra við innleiðingu námsmats sé hafnað.
Þá segir einnig að flokkurinn leggist gegn aukinni skattheimtu á ferðaþjónustu og að virðisaukaskattur skuli haldast í 11%.
Hafna fjársveltisstefnu stjórnvalda gagnvart farsæld barna
Ályktunin er birt í heild sinni á vef Framsóknar.
Þar segir að Framsókn leggi til að skattleysismörk hækki um 0,5% umfram verðlag og að fjárhæð barnabóta skuli fylgja verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.
Þá kemur fram að ríkið skuli tryggja sveitarfélögum fjármagn til að veita börnum stuðning.
„Það er með öllu ótækt og óverjandi að ríkisstjórnin standi ekki við þá samninga sem gerðir hafa verið, ekki síst vegna barna með fjölþættan vanda.“
Flokkurinn vill að Landsvirkjun verði áfram í eigu þjóðarinnar og að kjör tekjulægstu eldri borgaranna verði sett í forgang.
„Miðstjórn tekur undir tillögu Landssambands eldri borgara um sérstaka mánaðarlega uppbót til þeirra sem minnst hafa.“
Vilja að stjórnvöld endurskoði breytingar á Loftbrú
Í ályktuninni er skorað á stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú. Mikilvægt sé að tryggja jöfnuð í búsetu allra landsmanna.
Miðstjórnin lýsir einnig yfir áhyggjum af dvínandi siðferðisvitund, skorti á ábyrgð og gegnsæi í stjórnarháttum. Stjórnmál eigi að byggja brýr en ekki reisa múra.
„Framsókn hafnar vaxandi skautun og stjórnmálamenningu sem elur á ótta, tortryggni og sundrungu.“
