Fresta lögum um brottfararstöð um eitt ár

Meirihluti allsherjar-og menntamálanefndar leggur á næstu dögum fram frumvarp þar sem lagt er til að gildistöku laga um brottfararstöð verði frestað um eitt ár – þangað til 1. desember 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Lögin áttu að taka gildi 1. desember og þá átti brottfararstöðin að opna sömuleiðis. Ekki hefur gengið að fá húsnæði undir brottfararstöðina.

Með því að fresta gildistökunni um eitt ár gefst svigrúm til að vinna áfram að lausn húsnæðismála og undirbúa starfsemina þannig að hún uppfylli öll skilyrði laga, segir í tilkynningunni.

Samhliða verður gildistöku þeirra breytinga á lögum um útlendinga sem tengjast starfsemi brottfararstöðvar frestað til sama tíma. Það felur meðal annars í sér að núgildandi heimildir til handtöku og gæsluvarðhalds samkvæmt lögum um útlendinga haldast óbreyttar þar til brottfararstöðin tekur til starfa.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.