Fyrsti snjór vetrarins þekur höfuðborgina

Fyrsti snjór vetrarins féll á höfuðborgarsvæðinu í morgun.

Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að snjórinn gæti þó bráðnað í höfuðborginni eftir því sem líður á daginn. „Hann gæti bráðnað seinni partinn. Það hlýnar og fer að rigna ofan í þetta.“

Búist er við snjókomu nokkuð víða á landinu í dag. Eftir því sem líður á daginn færist snjókoman austur.

Seinnipartinn á morgun versnar veður nokkuð. Veðurstofan hefur gefið út viðvaranir vegna hríðarveðurs á landinu norðanverðu.

Gular viðvaranir verða í gildi á Vestfjörðum, Norðurlandi eystra og miðhálendinu. Þá verður appelsínugul viðvörun í gildi vegna norðanstórhríðar á Ströndum og Norðurlandi vestra annað kvöld.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.