Grindvíkingum líst ekki vel á tillögur og endurkaupaáætlun fasteignafélagsins Þórkötlu. Boðað var til íbúafundar í Gjánni í Grindavík síðdegis.
„Veit ekki í hverra augu er verið að kasta ryki“
Endurkaupaáætlunin var birt í gær. Hún gerir Grindvíkingum kleift að kaupa til baka fasteignir sem félagið keypti eftir að bærinn var rýmdur vegna jarðhræringanna sem hófust fyrir þremur árum. Fasteignafélagið keypti hátt í þúsund eignir fyrir hönd ríkisins.
Íbúum stendur nú til boða að kaupa eignirnar til baka á upprunalegu söluverði, leigja þær eða taka þær frá í rúmt ár.
Íbúafundurinn hófst klukkan 17 í Gjánni. Þórdís Arnljótsdóttir fréttamaður var á fundinum og sagði Grindvíkingum finnast tillögurnar ómögulegar, meðal annars vegna árferðis.
Íbúar lögðu til að í stað þess að fólk þyrfti að taka ákvörðun á miðjum skólavetri fengi fólk að leigja húsnæði sín í Grindavík fyrir lágmarksleigu. Það sé að leigja annars staðar og geti ekki rifið sig upp.
Einhverjir voru ánægðir en gagnrýnin var meiri.Grindvíkingum líst illa á tillögur Þórkötlu um endurkaup á fasteignum í Grindavík. Í byrjun næsta árs býðst þeim að kaupa til baka fasteignar sem keyptar voru í kjölfar jarðhræringanna í nágrenni bæjarins.
Fréttastofa talaði við nokkra Grindvíkinga áður en fundurinn hófst.
Sólný Pálsdóttir sagðist ánægð með að heyra eitthvað frá Þórkötlu varðandi þessi mál.
„Persónulega finnst mér það dálítið seint en auðvitað ber að fagna því að við séum hérna í dag að skoða þetta. Ég hef svo sem ekki kynnt mér nákvæmlega hvernig þetta verður en ég fagna því að það er hreyfing á málinu og ég fagna því að við erum með þennan fund.“
Hún vonaðist til að fá tækifæri til að spyrja spurninga og að Grindvíkingar gætu haft áhrif á hvernig endurkaupin verða gerð.
Eyjólfi Gunnarssyni hugnast tillögur Þórkötlu ekki. „Ég veit ekki í hverra augu er verið að kasta ryki.“
Hann vildi að Þórkatla myndi setja hlutina skýrt fram strax í upphafi.
„Þannig að þeir sem vilja koma til baka og vilja byggja upp samfélagið geti gert það á þeim forsendum að þeir viti nákvæmlega að hverju þeir ganga.
