Vísbendingar eru um að einstaklingar hér á landi hafi greitt fyrir að sjá börn beitt kynferðislegu ofbeldi í beinu streymi. Ofbeldi á netinu verður sífellt útbreiddara.
Europol hefur ítrekað fjallað um þessa tegund kynferðisofbeldis gegn börnum í skýrslum sínum, sem verði sífellt víðtækara vandamál. Þar kemur fram að fólk geti greitt fyrir að fylgjast með ofbeldinu í rauntíma og geti jafnvel gefið fyrirmæli um hvers konar ofbeldi beita eigi börnin.
„Þetta er bara keypt þjónusta í raun og veru. Þú ert að kaupa þjónustu þar sem verið er að níðast á barni kynferðislega. Og þú greiðir með alls konar aðferðum og reynir þá kannski að fela það. En það er í okkar hlut að rannsaka og reyna að sýna fram á að þú hafir gert það,“ segir Gunnhildur Róbertsdóttir, deildarstjóri tölvurannsóknardeildar lögreglu, í viðtali í Kveik.
Þannig að þetta er beint streymi af fólki misnota börn?
„Algjörlega. Bara keypt þjónusta.“
Brotin fara oft fram í fátækari ríkjum, meðal annars á Filippseyjum, en kaupendurnir eru gjarnan búsettir í efnameiri löndum. Þeir sem brjóta á börnunum eru oftast einstaklingar sem þekkja börnin eða hafa þau í sinni umsjá.
„Það hafa komið upp mál her þar sem það er grunur um að aðilar séu að kaupa slíka þjónustu,“ segir Gunnhildur.
Þessi mál séu hins vegar flókin, rétt eins og Europol hefur greint frá í skýrslum sínum. Streymið er ekki endilega tekið upp, samskipti oft dulkóðuð og greiðslur yfir landamæri gera lögreglu erfitt fyrir. Gunnhildur segir margt erfitt við rannsókn slíkra mála og þykir dómar yfir kynferðisbrotamönnum oft of vægir.
„Mjög vægt miðað við viðbjóðinn sem er þarna bakvið.“
Nánari umfjöllun verður í Kveik í kvöld, þriðjudag, klukkan 21.05.
