Það óttuðust margir að Silfrastaðakirkja kæmi aldrei heim aftur, þegar þessari 130 ára gömlu kirkju var lyft af grunninum, hún hífð upp á vörubílspall og ekið eftir þjóðveginum út á Sauðárkrók til viðgerðar. Þetta var í október 2021 og nú, rúmum fimm árum síðar, er kirkjan aftur komin heim í Silfrastaði.
Silfrastaðakirkja er áttstrend að lögun en aðeins eru tvær kirkjur á landinu með sama byggingarlag, hin er Auðkúlukirkja í Húnabyggð. Torfkirkja sem áður var á Silfrastöðum er nú á Árbæjarsafni.
Mun meiri skemmdir en búist var við í fyrstu
María Jóhannsdóttir, bóndi í Kúskerpi í Skagafirði og formaður sóknarnefndar Silfrastaðakirkju, segir í viðtali við Spegilinn að það hafi aldrei verið fyrsti kostur að ráðast í þetta ferðalag með kirkjuna.
„Nei, það var sko ekki fyrsti kostur. Það átti bara að hífa hana af og leggja hana þarna á grasið við hliðina þar sem hún stóð og gera við hana og hífa hana aftur. En svo bara þegar hún er skoðuð þarna 2018 þá náttúrlega sjáum við að það er svo mikið að. Þetta væri langur tími. Já, við hugsuðum bara: – Guð, það verður aldrei hægt að koma henni út á Krók og þetta verður svo mikið mál og hún hrynur bara á pallinum. Það þurfti að slá út línunni þarna, sem sagt upp í Silfrastaði. Landsnet þurfti að koma. Við þurftum lögregluna, kirkjan var svo breið og krana til að hífa hana og fengum hann frá Ólafsfirði. Og þetta var nú dýrt dæmi að koma henni bara út úr dyrum þó að við værum með sjálfboðavinnu. Einar maðurinn minn flytur hana á bílnum sínum.“
Efuðust um að kirkjan héngi saman þegar hún var hífð af grunninum
Björn Friðrik Svavarsson, húsasmíðameistari hjá Trésmiðjunni Ýr á Sauðárkróki, hefur unnið við kirkjuna í fimm ár og séð um viðgerðina ásamt fleirum. Hann segir það hafa verið talsvert krefjandi að hífa kirkjuna af grunninum og þeir hafi hreinlega ekki verið vissir um að hún héngi saman. „En það bjargaðist og út á Krók fór hún.“
Á fimm árum hafa Björn og félagar snert nánast hverja einustu spýtu. „Já, þær eru ekki margar í fullri lengd hérna inni sem að ekki var skipt út. En þó skeyttum við það sem hægt var og það eru nokkrar spýtur frá upphafi í henni. En þakið var afar illa farið og er svona nærri því nýtt.“
Hann segir að auðvitað þurfi að umgangast svona verndað hús með ákveðinni virðingu og eftir ýmsum reglum. „Já, já, það þarf að fylgja reglum og það að fylgja þeim kostar, bæði tíma og peninga. En þetta snýst um það að halda í það sem hægt er. Við unnum bara eftir því sem fjármagnið kom og María á náttúrlega heiður skilið fyrir að berjast í að ná peningum í þetta, því það er ekki auðvelt verk.“
Formaður sóknarnefndar Silfrastaðakirkju vonast til að hægt verði að messa aftur í kirkjunni jólin 2027, eftir gagngerar endurbætur. Hún er staðráðin í að klára fjármögnun viðgerðanna sem áætlað er að kosti 70 milljónir króna.
Kostnaðaráætlun upp á 40-50 milljónir endar í 70 milljónum
Þegar verkefnið hófst áætlaði sóknarnefndin að heildarkostnaður yrði á bilinu 40 til 50 milljónir króna. Stór biti fyrir fámenna sókn, sem hefur stækkað talsvert síðan þá.
„Þetta er rétt í 70 milljónum,“ segir María. En þá er ég með allan flutning inn í, fram og til baka. Og við náttúrlega rýmdum hana sjálf, unnum það alveg, tókum alla bekki og þetta er í geymslu, altari og altaristafla og þetta gerðum við allt og rýmdum hana alveg og komum öllu fyrir. Þetta var áætlað upp á einhverjar milljónir að bara tæma hana. En svona var áætlunin upp á 50 en komin í 70 já.“
Kirkjan var rauð og hvít, hvítmálaðir veggir og rautt þak. Nú rekur fólk upp stór augu því hún er klædd með gráu blikki og þakið er grænt. En hún verður ekki þannig segir María. „Nei, nei, við verðum að hafa hvíta veggi og megum mála sjálf og þakið rautt. Mjög sennilega þarf að láta þetta bíða alla vega í ár, láta þetta svona aðeins veðrast, að minnsta kosti í ár.“
Finnst Minjastofnun oft heldur íhaldssöm
Þótt kirkjan sé komin aftur heim á Silfrastaði, eru mörg handtök eftir. Klæðningar innan á veggi og gólf, raflagnir, viðgerð og málning á bekkjum og fleiri innanstokksmunum. Já og hvíta og rauða málningin á þak og veggi. Náið samstarf er við Minjastofnun sem Maríu finnst oft heldur íhaldssöm.
„Minjastofnun lætur okkur ekki í friði, hún lætur okkur ekki hafa pening nema við uppfyllum allar óskir þeirra, allar. Og þeir láta náttúrlega bara ákveðið á ári í þetta. Það þarf að sækja um það á hverju ári og þeir eru ekkert ógurlega gjafmildir. Þeir létu okkur hafa 4 til 5 milljónir núna síðustu fimm ár í þetta, á ári.
„Ég fór auðvitað bara á hörkunni að ná í peninga og annað“
Auk sjálfboðavinnu og styrkja frá fyrirtækjum á heimaslóðum segir María að Minjastofnun hafi styrkt verkefnið með árlegum framlögum úr Húsafriðunarsjóði og þá hafi þau fengið framlög úr Jöfnunarsjóði kirkna.
„Ég fór auðvitað bara á hörkunni sko að ná í peninga og annað. Það er sko umsókn, umsókn.“
„Nærðu að safna 70 milljónum á endanum?“
„Já, ég er búin að sækja til Jöfnunarsjóðs núna sem ég fæ í vor, ég veit ekki nákvæmlega hvað það verður. Og svo er ég að fara að sækja aftur til Minjastofnunar núna fyrir 1. desember og ég vona að það verði fjórar til fimm milljónir. En svo er það þessi sjálfboðavinna sem ég vonast til að verði mikil núna, innanhúss.“
