Þrír unglingar voru í bíl sem valt á Akureyri rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Þeir voru fluttir burt með sjúkrabifreið en virðast ekki vera slasaðir. Þetta segir María Borg Gunnarsdóttir, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Óhappið varð þar sem Drottningarbraut mætir veginum sem liggur frá Kjarnaskógi. Unglingarnir eru um 17 ára gamlir. María segir að svo virðist sem óhappið hafi orðið vegna hálku.
