Hætt við frostrigningu og flughálku

Frostrigning og flughálka gætu sett mark sitt á höfuðborgarsvæðið upp úr miðjum degi í dag og á Selfossi og í lágsveitum Suðurlands um eða rétt fyrir hádegi.

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varaði í morgun við mögulegri frostrigningu og flughálku samfara henni um miðjan dag í dag. Veðrið gæti verið heldur fyrr á ferðinni nærri Selfossi og í lágsveitum Suðurlands.

Hálkan er stundum augljós en getur verið lævís og lúmsk. Það getur því verið gott að rifja upp fréttina hér að neðan. Hún er frá 2024. Þar lýsir Ágúst Mogensen, sérfræðingur í forvörnum, því hvernig hægt er að minnka líkur á alvarlegum slysum. Mörgæsagangur og mannbroddar koma við sögu.Vegfarendur gætu lent í vanda vegna hálku í dag. Flughált gæti orðið nærri Selfossi og í lágsveitum Suðurlands rétt fyrir hádegi og um miðjan dag á höfuðborgarsvæðinu.

Hægt er að minnka líkur á alvarlegum slysum með því að grípa til nokkurra bjargráða:

  • Gripgóðir skór og mannbroddar er besta lausnin ef ganga þarf í hálku.
  • Ganga mörggæsagang, hafa hendur aðeins út með síðu til að auka jafnvægi, taka stutt skref og láta líkamsþunga hvíla á fremra skrefi. Varast skal að ganga löngum skrefum á hælunum og alls ekki vera með hendur í vösum eða hluti í báðum höndum.
  • Hús- og fyrirtækjaeigendur þurfa að vera iðin við að moka, salta eða sanda.
  • Ef lagt er á hálu bílaplani skal snúa sér í sætinu og setja báða fætur út á meðan stutt er við bílinn.
  • Hvort sem gengið er upp eða niður tröppur skal styðja sig við handrið og taka eitt skref í einu.

Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.