Hætta sölu neftókbakshorna

ÁTVR ætlar að hætta framleiðslu neftóbakshorna. Búist er við að birgðir klárist í nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÁTVR.

Íslenskt neftóbak á sér langa sögu og hefur verið selt í ýmis konar ílátum, eins og dósum og krukkum, frá 1941. Tóbakshornin komu fyrst í sölu 1992.

Í tilkynningunni segir að sala neftóbaks hafi dregist mikið saman síðustu ár. Vegna þess og kröfu um hagræðingu er það mat ÁTVR „að ekki sé forsvaranlegt að vera með fleiri en eina gerð umbúða undir neftóbak til sölu.“

Eftir að birgðir klárast verður aðeins hægt að fá neftóbak í 50 gramma plastdósum.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.