Hafa það að atvinnu að brjóta á börnum

Fjöldi vefsíðna með barnaníðsefni á netinu þrefaldaðist á tveimur árum, á sama tíma og lögregluyfirvöld víða um heim hafa tekið niður hverja síðuna á fætur annarri. Síðurnar eru nær undantekningarlaust reknar í gróðaskyni.

Bresku samtökin Internet Watch Foundation fylgjast með útbreiðslu barnaníðsefnis á netinu. Vefsíðurnar eru oftast hýstar á myrkravefnum, eða darkweb, en þar er efnið líka grófast. Þannig greindu samtökin 335 faldar síður árið 2023, ári síðar voru þær orðnar 531 og í fyrra 705, hið minnsta. Þetta þýðir 33 prósenta aukningu á milli ára.

Hallur Hallsson er lögreglumaður í kynferðisbrotadeild.

„Fyrir fólkið á toppnum þá snýst þetta ekki um misnotkun heldur um peninga. Það eru fáránlega miklir peningar og allt sem færir því nýtt efni, það færir því meiri pening. Þannig að yfirleitt er hvati fyrir fólk að koma með nýtt efni.“

Ein af þessum síðum hét Kidflix. Á þriggja ára tímabili höfðu tæplega tvær milljónir manna skráð sig á síðuna, sem hafði að geyma yfir níutíu þúsund myndbönd með grófu kynferðisofbeldi gegn börnum. Síðan virkaði þannig að fólk fékk aukinn aðgang fyrir að deila myndefni á síðuna.

„Það eru dæmi um að brotamenn hafi ferðast um lönd og brotið á einu barni í hverju landi til að búa til einhverja seríu.“

Europol uppgötvaði síðuna og réðist í umfangsmiklar, alþjóðlegar aðgerðir. Tveir Íslendingar voru handteknir í tengslum við málið. Mál annars þeirra er enn til rannsóknar en hinn hefur þegar verið dæmdur. Héraðsdómur neitar að afhenda dóminn í málinu. Slíkar ákvarðanir dómstólsins eru fáheyrðar. Slíkar ákvarðanir dómstólsins eru afar fáheyrðar.

Fjallað verður um barnaníðsefni og útbreiðslu þess í Kveik í kvöld, þriðjudag, klukkan 21:05.