Eldislaxi er landað til slátrunar á þremur stöðum á landinu en höfnum gengur misjafnlega að innheimta eldisgjald.
Arctic Fish slátrar í Bolungarvík og borgar fyrir hvert landað kíló samkvæmt samningum um nýja sláturhúsið þar. Í Múlaþingi hefur höfnin á Djúpavogi fengið einhver eldisgjöld greidd frá Kaldvík á árinu en ekki öll. Viðræður um upphæðir ganga vel að sögn hafnar- og sveitarstjóra.
Sömu sögu er ekki að segja í Vesturbyggð því ekki hafa náðst samningar um gjöldin og mikið ber í milli.
„Viðræður ganga ekki neitt. Þetta er komið inn í lög þannig að heimildin er til staðar í lögum en hún er mjög óskýr. Hún setur þetta algjörlega í hendurnar á höfnunum að reikna hvað þjónustan kostar. Og við erum svo sem alveg búin að því en það er svo auðvelt að rengja það af því að lögin eru ekki nógu skýr,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.
Árlöng barátta fyrir nothæfum lögum
Vesturbyggð vakti fyrst athygli stjórnvalda á málinu árið 2010 og sagði að heimild til að innheimta aflagjald af löndun úr sjókvíaeldi væri óskýr. Það reyndist rétt því Arnarlax mótmælti gjaldskránni og safnaði skuld við höfnina. Vesturbyggð tapaði svo innheimtumáli. Niðurstaða dómstóla var að eldisfiskur væri ekki sjávarafli og ekki mætti innheimta aflagjöld.
Eftir dóminn tóku stjórnvöld við sér og var ákvæði um sérstakt eldisgjald bætt inn í hafnarlög. Það virðist hafa misheppnast því ekkert í lögunum segir til um hve hátt gjaldið skuli vera. Ekki var farið að ráðum umsagnaraðila sem bentu á að skýrt þyrfti að vera hvernig gjaldið skyldi reiknað. Svo virðist sem treyst hafi verið á að samkomulag næðist milli hafna og eldisfyrirtækja um einhvers konar þjónustugjald.
„Við höfum reiknað það út hvað þjónustan kostar og við erum búin að kynna það fyrir fyrirtækinu sem er að landa eldislaxi. En þeir bara meta það með allt öðrum hætti. Þannig að það ber svo mikið á milli. Og ég sé ekki fram á það að það sé hægt að ná einhverjum samningum,“ segir Gerður.
Stefnir í taprekstur hjá höfnum Vesturbyggðar
Nú stendur til að bæta úr þessu. Áform um að skýra gjaldtöku í hafnalögum eru á þingmálaskrá en Gerður segir að höggva þurfi á hnútinn sem fyrst. „Þeir hafa ekki greitt eldisgjöld á þessu ári til hafnanna og það munar um minna þannig að hafnirnar eru ekki að bera sig. Ef þessar tekjur koma ekki inn á þessu ári þá er bara hafnarsjóður rekinn í tapi og þá er ekki víst að við getum farið í þær framkvæmdir sem áformað var að fara í,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.
Arnarlax hafi víst greitt eldisgjöld
Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Arnarlax, segir að hið rétta sé að fyrirtækið hafi greitt 40 milljónir á þessu ári með fyrirvara um réttmæti upphæðarinnar. Frá árinu 2020 hafi fyrirtækið þar með greitt 650 milljónir í hafnargjöld í Vesturbyggð. Það gjald var dæmt ólöglegt fyrir dómi sem voru held ég 8 krónur á kílóið.Og ætlið þið að krefjast endurgreiðslu á þessum peningum?Við höfum ekki tekið afstöðu til þess. Við höfum bara beðið Vesturbyggð að koma til samtals við okkur. Þessar samningaviðræður hafi í rauninni staðið yfir í 8 ár og þau ákváðu að fara þessa leið að við yrðum að fara í gegnum dómskerfið til að fá niðurstöðu í það mál.Hvað er eðlilegt að borga fyrir þessa þjónustu og hvað eru þið tilbúin að borga mikið?Samkvæmt ráðgjöf áttum við að vera að borga 30 aura á kílóið. Samkvæmt óháðri ráðgjöf. En við erum tilbúin að borga eina krónu á kílóið. Þannig að það yrðu þá 20 milljónir á ári miðað sláturmagn á þessu ári og vonandi vaxandi. En miðað við það sem þau voru að miða við var þetta um 80 milljónir en það er bara of mikið.En því skyldi laxeldið borga minna gjald heldur en til dæmis útgerðir sem landa afla?Vegna þess að þjónustan er allt önnur og hún er í raun engin. Við sjáum um þetta sjálf og fiskinum er dælt úr bát beint inn í verksmiðju.
Hún bætir því við að fyrirtækið sé tilbúið að borga sanngjarnt gjald en það verði að semja um það og fyrirtækið sé tilbúið í þær viðræður. Aldrei hafi staðið á Arnarlaxi að greiða það fyrirtækinu beri og það sem sé sanngjarnt miðað við veitta þjónustu.
Uppfært 09.11.2026 kl 17:53: Fréttin var uppfærð með viðbrögðum og sjónarmiðum Arnarlax. Í fyrri útgáfu var fullyrt að fyrirtækið hefði ekki greitt eldisgjöld á árinu en því hafnar fyrirtækið.
