Halda áfram að þrýsta á ríkisstjórnina vegna afsagnar Harðar

Fjórar af fimm fyrirspurnum dagsins í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi snerust um afsögn forstjóra Landsvirkjunar og aðdraganda hennar. Stjórnarandstaðan beindi spjótum sínum að forsætisráðherra og fjármálaráðherra.

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins spurði Kristrúnu Frostadóttur hvort hún hefði vitað af áhyggjum Harðar Arnarsonar sem útlistaðar voru í minnisblaði til stjórnar þann 15. júní. Þær áhyggjur sneru meðal annars að því sem Hörður taldi pólitísk afskipti af daglegum rekstri fyrirtækisins.

„Vissi hún af þessum alvarlegu viðvörunum þegar fjármálaráðherra sagði hér á Alþingi 19. október að hér væri sagan öll sögð?“

Kristrún svaraði að Hörður hefði verið farsæll forstjóri í 17 ár og ekki átt mikið eftir af skipunartíma sínum þegar hann sagði upp starfi sínu. Þau ummæli hennar áttu reyndar eftir að koma síðar til umræðu.

Hvað spurningu Guðrúnar varðar sagði Kristrún að ágreiningurinn hefði ekki snúist um eitthvert eitt atriði heldur um almennt verklag.

„Þetta er það sem ég hef frá að segja. Ég þekki ekki smáatriði málsins meira en þetta.“ Velti Kristrún því fyrir sér hver tilgangurinn með spurningum stjórnarandstöðunnar væri.

„Hvert erum við komin í umræðu um tilgang stjórnar ef það er athugavert að fólk geti verið ósammála?“

Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, spurði því næst út í fundi fjármálaráðherra með stjórn Landsvirkjunar. Einkum og sér í lagi fund sem haldinn var 6. janúar en upphaflega hafði Hörður óskað eftir slíkum fundi en að ósk ráðherra varð niðurstaðan sú að stjórnin fundaði með ráðherranum.

Daði sagði að ekkert í beiðni Landsvirkjunar um þann fund hafi bent til þess að hann væri um nokkuð sérstakt heldur hafi efni fundarins verið málefni Landsvirkjunar.

„Mér þykir auðvitað miður og það er alveg eðlilegt að taka undir það, að hefði ég vitað af vandamálum hefði ég að sjálfsögðu viljað halda fundi en þeim var aldrei flaggað, þau komu ekki fram í beiðninni um fundinn og þess vegna fór það svo að þessi fundur var ekki haldinn,“ sagði Daði Már og bætti við að öll gögn sem til eru um málið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu verði lögð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem hefur boðað ítarlega athugun á málinu.

Misskildi ráðningarsamband Harðar

Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokks, var næstur og sagðist hafa veitt því athygli að forsætisráðherra hafi talað um að skipunartími Harðar hafi verið senn á enda. Kannski skiljanlega því ólíkt embættismönnum er forstjóri Landsvirkjunar ekki skipaður af ráðherra heldur ráðinn af stjórn. Og þar sem Hörður Arnarson er 64 ára var hann ekki á leiðinni að hætta sökum aldurs.

Stefán Vagn spurði því forsætisráðherra, í ljósi þessara orða, hvort það hafi verið búið að ákveða að endurnýja ekki starfssamninginn við Hörð.

„Það er ekkert hámark á skipunartíma og þess vegna er það mjög sérstakt að forsætisráðherra, ekki einu sinni heldur tvisvar í sinni ræðu hér, fór að tala um skipunartíma og að skipunartíma forstjóra hafi verið að ljúka. Það vekur augljóslega upp mjög margar spurningar.“

Kristrún baðst afsökunar á því að hafa afvegaleitt umræðuna. Hún hafi einfaldlega staðið í þeirri trú að skipunartími hans væri á enda og bað þingmenn um að lesa ekki meira í þau orð.

„Þetta var bara vel meint af minni hálfu, enda kem ég ekkert að skipun forstjóra Landsvirkjunar og hafi ekkert um það mál að segja […] Ég biðst afsökunar á því að það var rangt hjá mér.“

Þá sagðist Kristrún ekki hafa áhyggjur af því að málið verði til þess að Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefji frumkvæðisathugun á málum Landsvirkjunar vegna málsins.

„Það er bara ekkert óeðlilegt við að það sé haft eftirlit með stofnunum og fyrirtækjum.“