Hamborgarafabrikkan á Höfðatorgi hefur verið innsigluð að beiðni Skattsins. Vísir greinir frá.
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við fréttastofu að lögregla hafi aðstoðað Skattinn við að innsigla staðinn fyrir hádegi í dag. Hann vill ekki tjá sig frekar um málið.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri vill þó ekki staðfesta að staðnum hafi verið lokað. Hann segir trúnað ríkja um aðgerðir Skattsins.
