Handtekinn tvisvar sinnum sama kvöld

Maður var handtekinn tvisvar sinnum í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt. Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að hann hafi verið handtekinn fyrst eftir að hafa lent í útistöðum við dyraverði. Hann var fluttur á lögreglustöð og var sleppt þar sem málið var talið minniháttar.

Maðurinn fór ekki að tilmælum lögreglunnar um að snúa ekki aftur í miðbæ Reykjavíkur þetta kvöldið, heldur fór aftur á galeiðuna í miðborginni þar sem hann var handtekinn skömmu síðar og var vistaður í fangaklefa vegna ástands.

Þá voru tveir handteknir vegna líkamsárásar í miðbænum. Sá sem ráðist var á var fluttur á slysadeild eftir að hafa rotast. Meintir árásarmenn voru fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Annar þeirra var vistaður í fangageymslu vegna málsins en hinum var sleppt að lokinni vettvangsskýrslu.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.