Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík reiða sig í auknum mæli á munnlegt námsmat og lokapróf í lokuðu umverfi, í stað ritgerða, heimadæma og annars slíks.
„Við erum náttúrulega bara í miðri ánni,“ segir Margrét Sigrún Sigurðardóttir prófessor og sviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands. Þetta sé stærsta verkefnið sem háskólar séu að kljást við þessa dagana. Í HÍ hafi frekar verið lögð áhersla á að hanna námsmat þannig að hægt sé að vinna með gervigreind eftir tilteknum viðmiðum og reglum frekar en að banna hana. „Af því að ef við bönnum hana, þá endum við í kapphlaupi um það að greina notkun gervigreindar sem ég held að við getum ekki unnið,“ segir hún.
Bæði Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík hafa sett sér stefnur og reglur um notkun gervigreindar. Viðurlög við brotum eru þau sömu og við öðru svindli en ekki liggja fyrir opinberar upplýsingar um hversu margir hafa verið staðnir að svindli eða hvaða viðurlögum þeir hafa verið beittir. Það eru þó dæmi um slíkt.
Biðja um munnlega kynningu á verkefnum
Margrét Sigrún segir að passa þurfi upp á að eftirlit með mögulegum brotum gangi ekki svo langt að nemendur sem ekkert hafa af sér gert verði sakaðir um svindl. „Ég hef meðal annars heyrt að nemendur séu orðnir svo hræddir um það að vera ásakaðir um að nota gervigreind, þegar þeir hafa ekki notað hana, að þeir séu farnir að taka upp skjáinn sinn á meðan þau vinna verkefni til að geta sýnt fram á það að þeir hafi klárlega unnið verkefnin sjálfir,“ segir hún.Háskólar víða um heim hafa brugðist við framförum í gervigreind og hættunni af því að hún sé notuð til að svindla með ýmsum hætti – ekki síst með því að breyta námsmati. Það hafa stóru íslensku háskólarnir líka gert.
Ýmsar breytingar hafi verið gerðar á námsmati vegna framfara í gervigreind.
„Að vissu leyti erum við að færast frá símati, sem kennslufræðilega væri betri leið heldur en að vera með stór lokapróf. Margir kennarar hafa viljað halda verkefnum og endurgjöf yfir misseri en hafa þá brugðið á það ráð að biðja um munnlega kynningu á verkefnum þar sem hægt er að spyrja út í, til þess að sannreyna að nemandinn hafi unnið verkefnið sjálfur,“ segir Margrét Sigrún.
Betri í heimadæmum en verri í prófum
Í umfjöllun New York Times nú í haust kom fram að rannsókn sem tók til 26.000 nemenda á unglingastigi í Kína leiddi í ljós að notkun gervigreindar bætti árangur í heimanámi um 18%. Prófseinkunnir, þar sem ekki var hægt að nota gervigreindina, lækkuðu á hinn bóginn um 20%. Þessi þróun er ekki einskorðuð við Kína. Í HÍ og líklega í flestum öðrum skólum eru ákveðnar áskoranir við að leggja fyrir heimaverkefni.
Þetta sjáist kannski helst á verk- og tæknisviðum þar sem er áratugalöng hefð fyrir heimadæmum, sem gilda kannski ekki til lokaeinkunnar en nemendur þurfa að skila þeim til að fá rétt til að taka lokapróf. Þau eru sem sagt fyrst og fremst æfing fyrir nemandann. Margrét segir að gæði í lausnum í heimadæmum hafa hækkað og lausnirnar séu oftar réttar. Á hinn bóginn standa nemendur sig verr á pfórum.
„Þarna eru nemendur í rauninni að svíkja sjálfa sig með því að nýta gervigreindina til þess að einfalda sér lausn og vinnu við heimadæmi en eru þá að mæta óundirbúin í prófin,“ segir Margrét Sigrún.
Nemendur í fjarnámi koma í staðlotur
Nám við HÍ er fyrst og fremst staðnám, en einnig er boðið upp á fjarnám, aðallega á menntavísindasviði og félagsvísindasviði.
Hvað um fjarnámið? Hvernig hafið þið eftirlit með því að gervigreindin sé ekki notuð umfram þær reglur sem gilda við fjarnám?
„Við erum í minni daglegum samskiptum við nemendur í fjarnámi en fjarnemar hjá okkur eru engu að síður alltaf að koma í staðlotur. Þannig að það er áfram tenging við nemendur í staðlotum og við höfum í raun sömu leiðir til að athuga með þeirra verkefnaskil eins og í staðnámi,“ segir hún.
Margir hafa farið í gegnum háskólanám á glósum og glærum
Margrét Sigrún bendir á að gervigreindin, sé hún notuð á réttan hátt, geti verið mjög gagnleg.
Nemendur hafi til dæmis í gegnum aldirnar ekki haft aðgang að kennaranum sínum á kvöldin og um helgar. Nú geti þau beðið gervigreindina um að setja sig í spor kennara í námskeiðum og beðið hana um að hjálpa þeim að skilja námskeiðið. Nemendur sem nýta gervigreindina á þann hátt geti náð betri árangri en þau sem reyni að láta hana einfaldlega svara fyrir sig.
Gervigreindin er öflugt tól og getur hjálpað við nám. Hún getur látið gera próf fyrir þig, krossapróf, jafnvel hlaðvarp upp úr námsefninu. En er eitthvað sem tapast? Er einhver færni sem næst með því að lesa texta upp á eigin spýtur og stauta sig í gegnum erfitt mál, jafnvel á öðru tungumáli, sem nemendur fá þá ekki vegna þess að gervigreindin gerir þetta allt fyrir þau?
„Já, að sjálfsögðu. En þetta var í raun byrjað að gerast fyrir gervigreindina,“ segir hún. Það sé svolítið síðan nemendur, að minnsta kosti hluti þeirra, hætti að lesa kennslubækur. „Mjög margir nemendur hafa farið hér, í mörg ár, í gegnum háskólanám á glósum og glærum.“
Þetta hafi verið byrjað að gerast fyrir gervigreindin. Ef nemendur sem annars hefðu ekki keypt og lesið kennslubók eru að láta gervigreindina búa til hlaðvarp fyrir sig og hlusta á það, þá taka þau efnið inn sem þau voru kannski ekki að gera fyrir fimm árum, sem sé jákvætt. „Bestu nemendurnir hjá okkur, þá lásu kennslubókinu og eru örugglega enn þá að lesa kennslubókina,“ segir Margrét Sigrún.
HR leggur áherslu á fjölbreytt námsmat
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, aðstoðarrektor náms, nemenda og sjálfbærni við Háskólann í Reykjavík, hefur svipaða sögu að segja um hvernig HR hefur breytt námsmatinu.
„Já, við höfum farið ýmsar leiðir í því. Það er stefna skólans að hafa fjölbreytni í námsaðferðum og námsmatsaðferðum,“ segir hún.
Ein leiðin er sú að í sumum lokaprófum er aðgangur læstur að öðru en prófinu sjálfu, en sömu sögu er raunar að segja af HÍ. Það þýðir að jafnvel þótt tækni sé notuð við námsmat, þá hefur hún þá eiginleika að hún getur læst úti gervigreind og annað.
Þá hafi HR í töluverðum mæli farið meira í munnlegt námsmat, þar sem tæknin er hvergi nærri.
Enn séu þó lögð fyrir heimaverkefni en þá sé jafnvel ætlast til þess að nemendur noti gervigreind, enda muni þeir nota hana þegar út á vinnumarkaðinn er komið.
Skólinn hafi líka í auknum mæli tekið upp aðferðafræði sem kallast hugsandi skólastofa, sérstaklega hjá fyrsta árs nemum í verkfræði og tölvunarfræði. Þá sé tæknin skilin eftir og nemendum skipt í litla hópa sem vinna saman við að leysa verkefni, útskýra fyrir hvert öðru skref fyrir skref hvernig þau komast að niðurstöðu en kennarinn er leiðbeinandi.
Mikilvægi kennslustofunnar meira en áður
En hvað um hefðbundin heimadæmi og ritgerðir sem nemendur vinna, eða unnu, heima hjá sér?
„Þau þurfa ekkert að vera úr sögunni. En við þurfum bara að vera með opin augun fyrir því hvað það er sem við viljum fá út úr hverju verkefni og hafa það vel skilgreint. Við erum staðarskóli, við erum með nemendur meira og minna hjá okkur í kennslustundum að vinna saman að verkefnum. Og við lítum á það sem hlutverk okkar að kenna þeim þessi vinnubrögð, innan veggja skólans, í samstarfi við kennara og nemendur. Vissulega fer fram heimavinna og heimanám en ég myndi segja að mikilvægi kennslustofunnar og mikilvægi félagslega samstarfsins innan veggja skólans hafi kannski ekki verið meira í langan tíma,“ segir Bryndís Björk.
