Hefja vinnu við gerð norræns samnings um varnarsamstarfs

Ákveðið hefur verið að hefja vinnu við gerð norræns varnarsamstarfssamnings. Þetta var ákveðið á fundi varnarmálaráðherra Norðurlanda undir merkjum NORDEFCO sem haldinn var í Osló í Noregi. Greint er frá þessu á vef stjórnarráðsins.

Noregur fer með formennsku í norræna varnarsamstarfinu en Svíar taka við keflinu eftir áramót.

Yfirmenn herafla Norðurlandanna tóku þátt í hluta fundarins ásamt Nick Perry, hershöfðingja og yfirmanni aðgerðarstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk í Bandaríkjunum.

Á fundinum var meðal annars rætt um málefni Atlantshafsbandalagsins, NATO, vaxandi framlög til varnarmála og aukna fælingar- og varnargetu þess.

Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkjanna kom fram að nýr kafli í norræna varnarsamstarfinu sé að hefjast. Norðurlöndin taki sinn skerf af byrðaskiptingunni innan NATO.

„Því var ákveðið á fundinum að hefja vinnu við gerð norræns varnarsamstarfssamnings. Slíkur samningur kemur til með að skerpa á lagalegri umgjörð norrænnar varnarsamvinnu og renna þannig styrkari stoðum undir vaxandi samstarf milli norrænu ríkjanna og eflir framlag þeirra til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins,“ segir á vef stjórnarráðsins.

Auk þessa fundar fór fram ráðstefnan Atlantic Future Forum á vegum breskra stjórnvalda um helstu áskoranir í öryggis- og varnarmálum. Þar hittust yfirmenn flota Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) og staðfestu aukið samstarf um öryggis- og varnarmál á hafi.

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir hönd Íslands. Páll Winkel, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, sótti Haga-fundinn.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.