Hefur fundið hundruð vodkapela við Hvalfjarðarveg

„Er virkur alkóhólisti á meðal vor?“ Svona byrjar færsla Sigurbjörns Hjaltasonar, íbúa í Kjósarhreppi, á umræðusíðu íbúa sveitarfélagsins á Facebook. Sigurbjörn hefur orðið var við vodkapela og bjórdósir í vegakantinum við land sitt nánast daglega undanfarin fjögur ár. Flöskurnar skipta hundruðum segir hann.

Sigurbjörn birti færsluna til að reyna að ná til sökudólgsins og biðja hann um að hætta að fleygja flöskunum í náttúruna. Í samtali við fréttastofu segist hann ekki hafa hugmynd hver sá hinn sami sé.Ég hafði ákveðna grunaða en þeir eru allir dánir eða hættir að drekka.

Flöskurnar finni hann mest á svipuðu svæði á Hvalfjarðarvegi, frá Göngum og inn eftir Kjósinni. Hann telji því að einstaklingurinn sé að drekka við akstur og fleygi pelunum út um gluggann til að fela drykkjuna. Það sé ekki aðeins sóðaskapur heldur stórhættulegt viðkomandi og öðrum í umferðinni.Þetta er einhver einstaklingur sem virðist skjóta á sig þegar hann keyrir hér inn í Hvalfjörðinn.

Hann segir pelana hafa farið stækkandi með árunum og því sé ljóst að drykkja einstaklingsins sé aðeins að aukast. Hann finni nýjar flöskur og dósir á hverjum degi. Áður hafi viðkomandi drukkið Finlandina vodka en hafi í seinni tíð skipt yfir í Kosenkorva. Sigurbjörn segist hvorki hafa heilsu né nennu lengur til að tína upp sóðaskap eftir aðra.

Hann segist muna þá tíð þegar það tíðkaðist að varpa hvers kyns rusli út um bíla á ferð. Í dag heyri það almennt til undantekninga að rusl sjáist í vegköntum. Ástandið við Hvalfjarðarveginn sé aftur á móti til skammar.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.