Lögreglan á Vestfjörðum hafði afskipti af manni í íbúðarhúsi í Súðavík í gærkvöld.
Í ljós kom að maðurinn hélt til í húsi sem er á hættusvæði, þar er bannað að búa frá 1. nóvember til 30. apríl vegna snjóflóðahættu. Lögregla segir í færslu á Facebook að maðurinn virðist hafa leigt húsið af eiganda þess.
Bannað er að búa í húsum í gamla hluta Súðavíkur yfir háveturinn vegna snjóflóðahættu. Slíkt bann var sett til að stuðla að öryggi fólks. Höfnin í Súðavík. Mynd úr safni.Jóhannes Jónsson
