Það hefur tíðkast síðan árið 1951 að Óslóarborg gefi Reykjavík veglegt jólatré ár hvert. Lengi vel var siglt með tréð frá Noregi til Íslands en síðan 2014 hefur tréð verið fellt í Heiðmörk til að minnka kolefnisspor.Heiðmörk skartaði vetrarskrúðanum þegar stæðilegt Óslóartré var fellt eins og siður er ár hvert. Borgarstjóri sagði verkið erfiðara en það sýndist en fékk góða leiðsögn.
Tréð hefur ávallt staðið á Austurvelli yfir jólahátíðina og kveikt er á ljósum við hátíðlega athöfn. Í stað trésins gefur Óslóarborg skólabókasöfnum Reykjavíkurborgar bókagjöf.
Fyrsta Óslóartré borgarstjóra
Í ár féll það í hlut Hildar Björnsdóttur, borgarstjóra í Reykjavík, að saga niður tréð og var það jafnframt frumraun hennar í trjáfellingum.
„Þetta tekur meira á en maður heldur, það þarf að vera í djúpri hnébeygju og beita smá afli og skynsemi en ég var með ofsalega góða leiðsögn þannig að þetta hófst.“
Þú varst að telja árhringina áðan, hversu margir voru þeir?
„Við erum að meta að tréð sé á fimmtugsaldri, ætli það sé ekki svona 48 ára, við gátum okkur til um það.“
Og hvað var tréð hátt?
„Það var 13 metrar og 35 sentimetrar, glæsilegt tré.
Álitleg tré í gjörgæslu
Fimmtíu tré eru gróðursett fyrir hvert tré sem fellt er í Heiðmörk.
Auður Elva Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, segir mikið lagt í að velja rétta tréð.
„Ár hvert fer Sævar Hreiðarsson, skógarvörðurinn okkar, út um allan skóg og grisjar frá fallegum trjám. Þannig að hann er með svona 20 til 40 tré í hálfgerðri gjörgæslu og passar að þau fái sól og njóti sín. Svo fer hann með mér og þetta er eitt skemmtilegasta af því sem ég geri að hafa skoðun á hvaða tré fær að vera svo heppið að fara niður á Austurvöll.“
Og var ekkert vafamál hvaða tré yrði valið í ár?
„Við vorum alveg sammála um að okkur þótti þetta býsna fallegt,“ segir Auður.
