Himinhár gjaldveggur setji námið í hættu

Skólagjöld sem tekin verða upp fyrir nemendur utan Evrópska efnahagssvæðisins við Háskóla Íslands gæti haft veruleg áhrif á aðsókn í alþjóðlegt nám við skólann.

Hópur fólks hefur sérstakar áhyggjur af tveir námsleiðum í alþjóðlegu meistaranámi í íslenskum miðaldafræðum (e. Medieval Icelandic Studies) annars vegar og víkinga- og miðaldafræði (e. Viking and Medieval Norse Studies) hins vegar. Undirskriftasöfnun hefur verið sett af stað þar sem skorað er á stjórnvöld og Háskóla Íslands að endurskoða fyrirhugaðar hækkanir á skólagjöldum. Um 1.400 manns hafa sett nafn sitt á listann.

Námsleiðirnar eru báðar kenndar á ensku en þar gefst nemendum kostur á að rannsaka íslenskar fornbókmenntir, Íslendingasögurnar, Eddukvæði, norræna menningu, miðaldasögu og íslensk handrit. Í undirskriftasöfnuninni er lögð áhersla á að alþjóðlegur nemendahópur sé grundvallarforsenda þess að hægt sé að halda námsleiðunum gangandi. Ef stór hluti umsækjenda hafi ekki lengur fjárhagslegt svigrúm til að sækja um námið geti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir framtíð þess.

Skólagjöld á nemendur frá ríkjum utan EES verða tekin upp á næsta ári. Það var samþykkt með lögum frá Alþingi í sumar. Nemar frá Færeyjum, Grænlandi og Sviss eru undanþegnir skólagjöldunum þrátt fyrir að lönd þeirra séu ekki hluti af Evrópska efnahagssvæðinu.

Haraldur Bernharðsson prófessor í íslenskum miðaldafræðum og forseti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands segir að þrír fjórðu nemendanna komi frá löndum utan EES.

„Það eru að jafnaði 25 nemendur í náminu, stundum fleiri og stundum færri. Þrír fjórðu eru utan evrópska efnahagssvæðisins. Það eru því miklar líkur á aðsókn í námið dragist verulega saman þar sem þetta eru háar upphæðir, á fimmtu milljón og ekki á færi margra að greiða það.“

Námið í miðaldafræðum hefur verið í boði í 20 ár. Að sögn Haralds er gríðarleg eftirspurn eftir þessu námi á ensku. „Fólk hefur mikinn áhuga á því að fræðast um Íslendingasögur, Eddukvæðin og allt mögulegt sem tengist íslenskri menningu.“

Menningarleg skylda að halda náminu úti

„Næstum því 40% þeirra sem hafa stundað námið við Háskóla Íslands hafi síðar haldið áfram í doktorsnám. Þeir hafa fengið akademísk störf um allan heim og eru menningarsendiherrar, þessir nemendur.“

Haraldur segir það vera menningarlega skyldu Íslendinga að halda þessu námi úti.

„Ef við sinnum þessu ekki þá gerir það enginn. Háskóli Íslands er í fararbroddi hvað þetta varðar. Það má segja að við höfum sérstökum skyldum að gegna. Þetta hangir saman við, ef við lítum til baka, þegar við sóttumst eftir að fá handritin heim. Safn Árna Magnússonar frá Kaupmannahöfn snerist ekki bara um að fá handritin heim heldur líka rannsóknargögnin og þekkinguna. Með því að setja upp himinháan gjaldvegg er verið að eyðileggja þá starfsemi sem hér fer fram.

Hann segir að það kosti að sjálfsögðu pening að halda þessu námi úti en að peningnum sem hefur verið varið til starfseminnar hafi skilað góðum arði. „Námið og þær rannsóknir sem hér eru stundaðar er búið að breiða út þekkingu á íslenskri menningu og miðaldafræði.“

Haraldur segir að lokum að hækkanirnar verði að öllum líkindum til þess að færri útlendingar muni læra íslensku við háskólann. „Við viljum ekki fækka þeim sem læra íslensku og íslensk fræði. Áform um hækkun skólagjalda mun örugglega fækka þeim nemendum og þá erum við að stefna í ranga átt.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.